Ef einhver fer með villukenningar og fylgir ekki hinum heilnæmu orðum Drottins vors Jesú Krists og því sem trú okkar kennir, þá hefur hann ofmetnast og veit ekki neitt. Hann er sótttekinn af þrætum og orðastælum. Af þessu fæðist öfund, deilur, lastmæli, vondar hugsanir, þjark og þras hugspilltra manna sem eru sneyddir sannleikanum en skoða trúna sem gróðaveg.
Já, trúin samfara nægjusemi er mikill gróðavegur. Því að ekkert höfum við inn í heiminn flutt og ekki getum við heldur flutt neitt út þaðan.
Ef við höfum fæði og klæði þá látum okkur það nægja. En þeir sem ríkir vilja verða falla í freistni og lenda í snöru alls kyns óviturlegra og skaðlegra fýsna er sökkva mönnunum niður í tortímingu og glötun.
Fégirndin er rót alls ills. Við þá fíkn hafa nokkrir villst frá trúnni og valdið sjálfum sér mörgum harmkvælum.