Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 17. apríl – Mrk 1.16–28

Jesús var á gangi með fram Galíleuvatni og sá Símon og Andrés, bróður Símonar, vera að kasta netum í vatnið en þeir voru fiskimenn. Jesús sagði við þá: „Komið og fylgið mér og mun ég láta ykkur menn veiða.“ Og þegar í stað létu þeir eftir netin og fylgdu honum.
Jesús gekk skammt þaðan og sá Jakob Sebedeusson og Jóhannes, bróður hans, og voru þeir einnig á báti að búa net. Jesús kallaði þá og þeir yfirgáfu Sebedeus föður sinn hjá daglaunamönnunum í bátnum og fylgdu honum.

Þeir komu til Kapernaúm. Og hvíldardaginn gekk Jesús í samkunduna og kenndi. Menn urðu mjög snortnir af orðum hans því að hann kenndi þeim eins og sá er vald hefur og ekki eins og fræðimennirnir.
Þar var í samkundu þeirra maður haldinn óhreinum anda. Hann æpti: „Hvað vilt þú okkur, Jesús frá Nasaret? Ert þú kominn að tortíma okkur? Ég veit hver þú ert, hinn heilagi Guðs.“
Jesús hastaði þá á hann og mælti: „Þegi þú og far út af honum.“
Þá teygði óhreini andinn manninn, rak upp hljóð mikið og fór út af honum. Sló felmtri á alla og hver spurði annan: „Hvað er þetta? Hann kennir á nýjan hátt. Það er eins og hann búi yfir guðlegum mætti! Hann skipar jafnvel óhreinum öndum og þeir hlýða honum.“ Og orðstír hans barst þegar um alla Galíleu.

Biblíulestur 27. október – 3Mós 23.27–38

„Á tíunda degi í þessum sama sjöunda mánuði er friðþægingardagurinn. Þá skuluð þið halda helga samkomu, leggja á ykkur líkamleg meinlæti og færa Drottni eldfórn. Þennan dag skuluð þið ekkert [...]

Fara efst