Biblíulestur 18. apríl – Slm 119.17–32
Ger vel til þjóns þíns svo að ég lifi
og megi halda orð þín.
Ljúk upp augum mínum svo að ég sjái
dásemdirnar í lögmáli þínu.
Ég er gestur á jörðinni,
dyl eigi boð þín fyrir mér.
Ég tærist sífellt af þrá
eftir ákvæðum laga þinna.
Þú hefur ógnað hrokafullum,
þeim bölvuðu sem víkja frá boðum þínum.
Léttu af mér háðung og skömm
því að ég hef haldið fyrirmæli þín.
Þótt höfðingjar sitji og taki saman ráð sín gegn mér
íhugar þjónn þinn lög þín.
Já, fyrirmæli þín eru unun mín,
boð þín ráðgjafar mínir.
Sál mín loðir við duftið,
lát mig lífi halda eftir orði þínu.
Ég sagði þér frá breytni minni og þú svaraðir mér,
kenn mér lög þín.
Lát mig skilja veg fyrirmæla þinna,
að ég megi íhuga dásemdir þínar.
Sál mín tárast af trega,
reis mig upp eins og þú hefur heitið.
Lát veg lyginnar vera fjarri mér
og kenn mér af gæsku þinni.
Ég hef valið veg sannleikans
og hef ákvæði þín fyrir augum.
Ég held fast við fyrirmæli þín,
Drottinn, lát mig eigi verða til skammar.
Ég vil skunda veg boða þinna
því að þú hefur dýpkað skilning minn.
Biblíulestur 5. nóvember – Matt 18.15–20
Ef bróðir þinn syndgar [gegn þér] skaltu fara og tala um fyrir honum og sé það ykkar einna í milli. Láti hann sér segjast hefur þú endurheimt bróður þinn. En [...]
Biblíulestur 4.11.2023 – Slm 64.1–11
Heyr, Guð, raust mína er ég kveina, varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins, skýl mér fyrir flokki illmenna, fyrir illvirkjamúg er hvetur tungur sínar sem sverð, miðar eitruðum orðum líkt [...]
Biblíulestur 3. nóvember – Matt 6.16–23
Þegar þér fastið þá verið ekki döpur í bragði eins og hræsnarar. Þeir afmynda andlit sín svo að engum dyljist að þeir fasta. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið [...]
Biblíulestur 2.11.2023 – Sak 7.1–14
Á fjórða degi hins níunda mánaðar, kislevmánaðar, á fjórða stjórnarári Daríusar konungs barst Sakaría orð Drottins. Þá sendu þeir Betel Sareser og Regem Melek og menn hans sendiboða til þess [...]
Biblíulestur 1. nóvember – Jes 58.1–9
Kalla þú fullum hálsi og dragðu ekki af, hef upp rödd þína eins og hafurshorn og segðu þjóð minni frá afbrotum hennar og niðjum Jakobs frá syndum þeirra. Þeir leita [...]
Biblíulestur 31. október – Jóh 8.31–36
Þá sagði Jesús við Gyðingana, sem tekið höfðu trú á hann: „Ef þér farið eftir því sem ég segi eruð þér sannir lærisveinar mínir og munuð þekkja sannleikann, og sannleikurinn [...]