Biblíulestur 19. apríl – Jóh 21.15–19
Þegar þeir höfðu matast sagði Jesús við Símon Pétur: „Símon Jóhannesson, elskar þú mig meira en þessir?“
Hann svarar: „Já, Drottinn, þú veist að ég elska þig.“
Jesús segir við hann: „Gæt þú lamba minna.“ Jesús sagði aftur við hann öðru sinni: „Símon Jóhannesson, elskar þú mig?“
Hann svaraði: „Já, Drottinn, þú veist að ég elska þig.“
Jesús segir við hann: „Ver hirðir sauða minna.“ Hann segir við hann í þriðja sinn: „Símon Jóhannesson, elskar þú mig?“
Pétur hryggðist við að hann skyldi spyrja hann þriðja sinni: „Elskar þú mig?“ Hann svaraði: „Drottinn, þú veist allt. Þú veist að ég elska þig.“
Jesús segir við hann: „Gæt þú sauða minna. Sannlega, sannlega segi ég þér: Þegar þú varst ungur bjóstu þig sjálfur og fórst hvert sem þú vildir en þegar þú ert orðinn gamall munt þú rétta út hendurnar og annar býr þig og leiðir þig þangað sem þú vilt ekki.“
Biblíulestur 11.11.2023 – Slm 65.1–14
Þér ber lofsöngur, Guð á Síon, og við þig séu heitin efnd. Þú, sem heyrir bænir, til þín leita allir menn. Þegar misgjörðir vorar verða oss um megn fyrirgefur þú [...]
Biblíulestur 10. nóvember – Mrk 12.1–12
Þá tók Jesús að segja þeim dæmisögu: „Maður plantaði víngarð. Hann hlóð garð um hann, gróf fyrir vínþröng og reisti turn, seldi hann síðan vínyrkjum á leigu og fór úr [...]
Biblíulestur 9. nóvember – Jes 5.1–7
Ég vil kveða um ástvin minn, ástarkvæði um víngarð hans. Ástvinur minn átti víngarð á frjósamri hæð. Hann stakk upp garðinn, tíndi úr honum grjótið, gróðursetti gæðavínvið. Hann reisti turn [...]
Biblíulestur 8. nóvember – Hlj 4.1–11
Hversu blakkt er gullið orðið, umbreyttur málmurinn dýri, helgum steinum er sóað á öllum gatnamótum. Dýrmætir synir Síonar voru jafnvægir skíragulli, nú eru þeir lagðir að jöfnu við leirker, handaverk [...]
Biblíulestur 7. nóvember – 5Mós 30.11–20
Þetta boð, sem ég legg fyrir þig í dag, er ekki óskiljanlegt eða fjarlægt þér. Það er ekki uppi í himninum svo að þú þurfir að spyrja: „Hver vill stíga [...]
Biblíulestur 6. nóvember – Opb 21.1–8
Og ég sá nýjan himin og nýja jörð því að hinn fyrri himinn og hin fyrri jörð voru horfin og hafið var ekki framar til. Og ég sá borgina helgu, [...]