Kalla þú fullum hálsi og dragðu ekki af,
hef upp rödd þína eins og hafurshorn
og segðu þjóð minni frá afbrotum hennar
og niðjum Jakobs frá syndum þeirra.
Þeir leita svara hjá mér dag eftir dag
því að þeir vilja þekkja vegi mína.
Eins og þjóð sem iðkar réttlæti
og víkur ekki frá boðum Guðs síns
krefja þeir mig um réttan dóm
og vilja að Guð nálgist þá.
Hvers vegna föstum vér en þú sérð það ekki,
þjökum oss en þú tekur ekki eftir því?
Daginn, sem þér fastið, stundið þér verslun
og haldið verkamönnum yðar að verki.
Þér fastið til að þræta og deila
og sláið með krepptum hnefa.
Fastið ekki eins og í dag
ef rödd yðar á að heyrast í upphæðum.
Er sú fasta sem mér líkar
sá dagur er menn þjaka sig,
láta höfuðið hanga eins og sef
og leggjast í sekk og ösku?
Kallar þú slíkt föstu
og dag sem Drottni geðjast?
Nei, sú fasta sem mér líkar
er að leysa fjötra rangsleitninnar,
láta rakna bönd oksins,
gefa frjálsa hina hrjáðu
og sundurbrjóta sérhvert ok,
það er, að þú miðlir hinum hungruðu af brauði þínu,
hýsir bágstadda, hælislausa menn
og ef þú sérð klæðlausan mann, að þú klæðir hann
og firrist ekki þann sem er hold þitt og blóð.
Þá brýst ljós þitt fram sem morgunroði
og sár þín gróa skjótt,
réttlæti þitt fer fyrir þér
en dýrð Drottins fylgir eftir.
Þá muntu kalla og Drottinn svara,
biðja um hjálp og hann mun segja: „Hér er ég.“
Ef þú hættir allri undirokun þín á meðal,
hættir hæðnisbendingum og rógi,