Biblíulestur 16. apríl – Mrk 1.1–15
Upphaf fagnaðarerindisins um Jesú Krist, Guðs son. Svo er ritað hjá Jesaja spámanni:
Ég sendi sendiboða minn á undan þér,
hann á að greiða þér veg.
Rödd hrópanda í eyðimörk:
Greiðið veg Drottins,
gerið beinar brautir hans.
Þannig kom Jóhannes skírari fram í óbyggðinni og boðaði mönnum að taka sinnaskiptum og láta skírast til fyrirgefningar synda og menn streymdu til hans frá allri Júdeubyggð og allir Jerúsalembúar og létu hann skíra sig í ánni Jórdan og játuðu syndir sínar.
En Jóhannes var í klæðum úr úlfaldahári, með leðurbelti um lendar sér og át engisprettur og villihunang. Hann prédikaði svo: „Sá kemur eftir mig sem mér er máttugri og er ég ekki verður þess að krjúpa niður og leysa skóþveng hans. Ég hef skírt ykkur með vatni en hann mun skíra ykkur með heilögum anda.“
Svo bar við á þeim dögum að Jesús kom frá Nasaret í Galíleu og Jóhannes skírði hann í Jórdan. Um leið og hann sté upp úr vatninu sá hann himnana ljúkast upp og andann stíga niður yfir sig eins og dúfu. Og rödd kom af himnum: „Þú ert minn elskaði sonur, á þér hef ég velþóknun.“
Þá knúði andinn hann út í óbyggðina og var hann í óbyggðinni fjörutíu daga og Satan freistaði hans. Hann hafðist við meðal villidýra og englar þjónuðu honum.
Þegar Jóhannes hafði verið tekinn höndum kom Jesús til Galíleu, prédikaði fagnaðarerindi Guðs og sagði: „Tíminn er fullnaður og Guðs ríki í nánd. Takið sinnaskiptum og trúið fagnaðarerindinu.“
Biblíulestur 24. október – Hós 6.1–6
Komið, hverfum aftur til Drottins því að hann reif sundur en mun lækna oss, hann særði en mun gera að sárunum. Hann lífgar oss eftir tvo daga, á þriðja degi [...]
Biblíulestur 23. október – Dan 12.1–13
Míkael, leiðtoginn mikli, sem verndar syni þjóðar þinnar, mun þá birtast. Verða þá slíkir hörmungatímar að eigi verður við jafnað frá því að þjóðin varð til. Á þeim tíma mun [...]
Biblíulestur 22. október – Matt 21.28–32
Jesús sagði: „Hvað virðist ykkur? Maður nokkur átti tvo syni. Hann gekk til hins fyrra og sagði: Sonur minn, far þú og vinn í dag í víngarði mínum. Hann svaraði: [...]
Biblíulestur 21.10.2023 – Slm 63.1–12
Sálmur eftir Davíð þá er hann var í Júdaeyðimörk. Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég. Sál mína þyrstir eftir þér, hold mitt þráir þig, í vatnslausu landi, skrælnuðu [...]
Biblíulestur 20. október – 2Kon 4.25–37
Hún lagði af stað og kom til guðsmannsins á Karmelfjalli. Þegar guðsmaðurinn sá hana álengdar sagði hann við Gehasí, þjón sinn: „Þarna kemur konan frá Súnem. Hlauptu nú á móti [...]
Biblíulestur 19. október – 2Kon 4.8–24
Dag nokkurn átti Elísa leið um Súnemborg. Þar bjó auðug kona sem bauð honum að þiggja mat hjá sér. Upp frá því mataðist hann hjá henni þegar hann fór þar [...]