Biblíulestur 15. apríl – Est 9.20–10.3
Þessa atburði skrásetti Mordekaí. Hann sendi bréf til allra Gyðinga í öllum héruðum konungsríkis Xerxesar, jafnt nálægum sem fjarlægum, til að gera þeim skylt að halda árlega helgan fjórtánda og fimmtánda dag mánaðarins adar. Þá daga öðluðust Gyðingar frið fyrir óvinum sínum og í þeim mánuði snerist sorg þeirra í fögnuð og hryggð þeirra í hátíð. Skyldu þeir dagar verða dagar veisluhalds og fagnaðar og menn senda hver öðrum matargjafir en gefa fátækum ölmusu. Og Gyðingar lögleiddu það sem þeir höfðu þannig stofnað til og Mordekaí hafði skrifað þeim um.
Haman Hamdatason og afkomandi Agags, hatursmaður allra Gyðinga, hafði ráðgert að tortíma Gyðingum og gereyða þeim. Til þess hafði hann varpað púr, það er hlutkesti, að honum mætti takast að afmá þá og eyða þeim. En málið hafði komið fyrir konung og hann hafði þá skipað svo fyrir með bréfi að fólskubrögð þau sem Haman hugðist beita Gyðinga skyldu koma honum sjálfum í koll og hann og synir hans skyldu festir á gálga. Vegna þessa voru dagarnir nefndir púrím eftir orðinu púr. Og af þessum sökum, vegna alls sem í bréfinu stóð og vegna þess sem þeir höfðu séð eða sjálfir reynt, gerðu Gyðingar það að skyldu og lögbundinni, ófrávíkjanlegri venju, jafnt sjálfum sér, öllum niðjum sínum og þeim sem tækju Gyðingatrú, að þessir tveir dagar skyldu haldnir heilagir árlega á tilsettum tíma og samkvæmt fyrirmælunum. Þessara daga skulu menn minnast kynslóð eftir kynslóð, í hverri ætt, í hverju héraði og hverri borg svo að púrímdagarnir verði áfram helgir með Gyðingum og minningin, sem þeir varðveita, falli aldrei í gleymsku meðal niðja þeirra.
Ester drottning, dóttir Abíhaíls, veitti Gyðingnum Mordekaí skriflegt umboð til að beita öllum áhrifamætti sínum til að gera síðara bréfið um púrím að lögum. Og bréf voru send til allra Gyðinga í héruðunum hundrað tuttugu og sjö í ríki Xerxesar með árnaðar- og hughreystingarorðum til að tryggja að púrímdagar væru haldnir á réttum tíma eins og Gyðingurinn Mordekaí hafði mælt fyrir um, á sama hátt og þau fyrirmæli um föstur og harmakvein sem Gyðingar höfðu gert sér og niðjum sínum skylt að hlýða. Það var tilskipun Esterar, sem gerði ákvæðin um púrím að lögum, og var hún skráð í bók.
Xerxes konungur lagði skatt á íbúa landsins og eyjanna í hafinu. En öll stórvirki hans og hreystiverk eru skráð í árbækur Medíu- og Persíukonunga auk lýsingar á frama þeim sem Mordekaí hlotnaðist hjá konunginum, enda var Gyðingurinn Mordekaí næstur konungi að tign. Meðal Gyðinga var hann mikils metinn og vinsæll af hinum fjölmörgu ættmennum sínum því að hann bar hag þjóðar sinnar fyrir brjósti og lét sér annt um velfarnað kynstofns síns.
Biblíulestur 18. október – Jak 1.19–27
Vitið þetta, elskuð systkin. Hver maður skal vera fljótur til að heyra, seinn til að tala, seinn til reiði. Því að reiði manns ávinnur ekki það sem rétt er í [...]
Biblíulestur 17. október – Post 6.1–7
Á þessum dögum, er lærisveinum fjölgaði, fóru grískumælandi menn að kvarta yfir því að hebreskir settu ekkjur þeirra hjá við daglega úthlutun. Hinir tólf kölluðu þá lærisveinahópinn saman og sögðu: [...]
Biblíulestur 16. október – Jóh 12.1–11
Sex dögum fyrir páska kom Jesús til Betaníu þar sem Lasarus var, sá er hann vakti frá dauðum. Þar var honum búinn kvöldverður og Marta gekk um beina en Lasarus [...]
Biblíulestur 15. október – Jóh 9.1–11
Á leið sinni sá Jesús mann sem var blindur frá fæðingu. Lærisveinar hans spurðu hann: „Rabbí, hvort hefur þessi maður syndgað eða foreldrar hans fyrst hann fæddist blindur?“ Jesús svaraði: [...]
Biblíulestur 14.10.2023 – Slm 62.1–13
Hjá Guði einum hlýtur sál mín hvíld, frá honum kemur hjálpræði mitt. Hann einn er klettur minn og hjálpræði, vígi mitt, mér skrikar ekki fótur. Hve lengi ætlið þér að [...]
Biblíulestur 13. október – Jóh 11.1–16
Maður sá var sjúkur er Lasarus hét, frá Betaníu, þorpi Maríu og Mörtu, systur hennar. En María var sú er smurði Drottin smyrslum og þerraði fætur hans með hári sínu. [...]