Hjá Guði einum hlýtur sál mín hvíld,
frá honum kemur hjálpræði mitt.
Hann einn er klettur minn og hjálpræði,
vígi mitt, mér skrikar ekki fótur.
Hve lengi ætlið þér að veitast að einum manni,
ráðast allir gegn honum
eins og gegn hallandi múr
sem er að hruni kominn?
Þeir ráðgast um það eitt að steypa honum úr tign hans,
þeir hafa yndi af lygi,
blessa með munninum, bölva í hjartanu. (Sela)
Hjá Guði einum hlýtur sál mín hvíld
því að frá honum kemur von mín.
Hann einn er klettur minn og hjálpræði,
vígi mitt, mér skrikar ekki fótur.
Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd,
minn örugga klett og athvarf mitt hef ég í Guði.
Þjóð, treyst honum ávallt,
úthell hjarta þínu fyrir honum.
Guð er oss athvarf. (Sela)
Hégóminn einn eru mennirnir,
tál eru mannanna börn,
á metaskálunum lyftast þeir upp,
einber hégómi eru þeir allir saman.
Treystið ekki á ofbeldi,
alið ekki fánýta von til rændra muna.
Þótt auðurinn vaxi,
þá reið þig ekki á hann.
Eitt hefur Guð sagt,
tvennt hef ég heyrt:
Hjá Guði er máttur
og hjá þér, Drottinn, er miskunn
því að þú geldur sérhverjum eftir verkum hans.