Biblíulestur 22. apríl – Mrk 2.13–28
Aftur fór Jesús út og gekk með fram vatninu. Allur mannfjöldinn kom til hans og hann kenndi þeim. Og er hann gekk þar sá hann Leví Alfeusson sitja hjá tollbúðinni og Jesús segir við hann: „Fylg þú mér!“ Og hann stóð upp og fylgdi honum.
Svo bar við að Jesús sat að borði í húsi hans. Margir tollheimtumenn og bersyndugir sátu þar með honum og lærisveinum hans en margir fylgdu honum. Fræðimenn af flokki farísea, sem sáu að hann samneytti tollheimtumönnum og bersyndugum, sögðu þá við lærisveina hans: „Hann etur með tollheimtumönnum og bersyndugum.“
Jesús heyrði þetta og svaraði þeim: „Ekki þurfa heilbrigðir læknis við heldur þeir sem sjúkir eru. Ég er ekki kominn til að kalla réttláta heldur syndara.“
Lærisveinar Jóhannesar og farísear héldu nú föstu. Þá koma menn til Jesú og spyrja hann: „Hví fasta lærisveinar Jóhannesar og lærisveinar farísea en þínir lærisveinar fasta ekki?“
Jesús svaraði þeim: „Hvort geta brúðkaupsgestir fastað meðan brúðguminn er hjá þeim? Alla þá stund sem brúðguminn er hjá þeim geta þeir ekki fastað. En koma munu þeir dagar er brúðguminn verður frá þeim tekinn, þá munu þeir fasta á þeim degi.
Enginn saumar bót af óþæfðum dúk á gamalt fat því þá rífur nýja bótin af hinu gamla og verður af verri rifa. Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi því þá sprengir vínið belgina og vínið ónýtist og belgirnir. Nýtt vín er látið á nýja belgi.“
Svo bar við að Jesús fór um sáðlönd á hvíldardegi og lærisveinar hans tóku að tína kornöx á leiðinni. Farísearnir sögðu þá við hann: „Lít á, hví gera þeir það sem er ekki leyfilegt á hvíldardegi?“
Jesús svaraði þeim: „Hafið þið aldrei lesið hvað Davíð gerði er honum lá á þegar hann hungraði og menn hans? Hann fór inn í Guðs hús þegar Abíatar var æðsti prestur og át skoðunarbrauðin, en þau má enginn eta nema prestarnir, og gaf líka mönnum sínum.“
Og Jesús sagði við þá: „Hvíldardagurinn varð til mannsins vegna og eigi maðurinn vegna hvíldardagsins. Því er Mannssonurinn einnig Drottinn hvíldardagsins.“
Biblíulestur 29. nóvember – Jes 8.23–9.6
8. kafliEngin björgun býðst þeim sem er ofurseldur algjörum sorta. Ekki skal myrkur vera í landinu sem fyrr var í nauðum statt. Fyrrum lét hann vansæmd koma yfir Sebúlonsland og [...]
Biblíulestur 28. nóvember – Lúk 3.10–20
Mannfjöldinn spurði hann: „Hvað eigum við þá að gera?“ En hann svaraði þeim: „Sá sem á tvo kyrtla gefi þeim er engan á og eins geri sá er matföng hefur.“ [...]
Biblíulestur 27. nóvember – Lúk 3.1–9
Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus var landstjóri í Júdeu en Heródes fjórðungsstjóri í Galíleu, Filippus, bróðir hans, í Ítúreu og Trakónítishéraði og Lýsanías í Abílene, í æðstapreststíð [...]
Biblíulestur 26. nóvember – Jóh 5.24–27
Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem heyrir orð mitt og trúir þeim sem sendi mig hefur eilíft líf og kemur ekki til dóms heldur er hann stiginn yfir frá [...]
Biblíulestur 25. nóvember – Okv 16.1–15
Fyrirætlanir hjartans eru á mannsins valdi en svar tungunnar kemur frá Drottni. Maðurinn telur alla vegu sína vammlausa en Drottinn reynir ásetning hans. Fel Drottni verk þín og þá bera [...]
Biblíulestur 24. nóvember – Matt 23.34–39
Þess vegna sendi ég til yðar spámenn, spekinga og fræðimenn. Suma þeirra munuð þér lífláta og krossfesta, aðra húðstrýkja í samkundum yðar og ofsækja borg úr borg. Þannig kemur yfir [...]