Biblíulestur 23. apríl – Lúk 17.11–19
Svo bar við á ferð Jesú til Jerúsalem að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. Og er hann kom inn í þorp nokkurt mættu honum tíu líkþráir menn. Þeir stóðu álengdar, hófu upp raust sína og kölluðu: „Jesús, meistari, miskunna þú oss!“
Jesús sá þá og sagði við þá: „Farið og sýnið yður prestunum.“ Þeir héldu af stað og nú brá svo við að þeir urðu hreinir. En einn þeirra sneri aftur er hann sá að hann var heill orðinn og lofaði Guð hárri raustu. Hann féll fram að fótum Jesú og þakkaði honum. En hann var Samverji. Jesús sagði: „Urðu ekki allir tíu hreinir? Hvar eru hinir níu? Urðu engir til þess að snúa aftur að gefa Guði dýrðina nema þessi útlendingur?“ Síðan mælti Jesús við hann: „Statt upp og far leiðar þinnar. Trú þín hefur bjargað þér.“
Biblíulestur 5. desember – Opb 7.9–17
Eftir þetta sá ég, og sjá: Mikill múgur, sem enginn gat tölu á komið, af öllum þjóðum og kynkvíslum, lýðum og tungum, stóð frammi fyrir hásætinu og frammi fyrir lambinu, [...]
Biblíulestur 4. desember – 1Pét 2.1–10
Segið því skilið við alla vonsku og alla pretti, hræsni, öfund og allt baktal. Sækist eins og nýfædd börn eftir hinni andlegu, ómenguðu mjólk til þess að þið af henni [...]
Biblíulestur á 1. sun í aðventu – Matt 21.1–11
Þegar þeir nálguðust Jerúsalem og komu til Betfage við Olíufjallið sendi Jesús tvo lærisveina og sagði við þá: „Farið í þorpið hér fram undan ykkur og jafnskjótt munuð þið finna [...]
Biblíulestur 2.12.2023 – Slm 67.1–8
Guð sé oss náðugur og blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor (Sela) 3svo að þekkja megi veg þinn á jörðinni og hjálpræði þitt meðal allra þjóða. 4Lýðir [...]
Biblíulestur 1. desember – Post 26.9–18
Sjálfur taldi ég mér skylt að vinna af öllu megni gegn nafni Jesú frá Nasaret. Það gerði ég og í Jerúsalem, hneppti marga hinna heilögu í fangelsi með valdi frá [...]
Biblíulestur 30. nóvember – Jes 60.1–6
Statt upp, skín þú, því að ljós þitt kemur og dýrð Drottins rennur upp yfir þér. Myrkur grúfir yfir jörðinni og sorti yfir þjóðunum en Drottinn er runninn upp yfir [...]