Biblíulestur 24. apríl – Mrk 3.1–19
Öðru sinni gekk Jesús í samkunduhús. Þar var maður með visna hönd og höfðu þeir nánar gætur á Jesú hvort hann læknaði hann á hvíldardegi. Þeir hugðust kæra hann. Og Jesús segir við manninn með visnu höndina: „Statt upp og kom hér fram!“ Síðan spyr hann þá: „Hvort er heldur leyfilegt að gera gott eða gera illt á hvíldardegi, bjarga lífi eða deyða?“
En þeir þögðu. Og Jesús leit á þá með reiðisvip, hvern á eftir öðrum, sárhryggur yfir harðúð hjartna þeirra og sagði við manninn: „Réttu fram hönd þína.“ Hann rétti fram höndina og hún varð heil. Þá gengu farísearnir út og tóku þegar með Heródesarsinnum saman ráð sín gegn honum, hvernig þeir gætu náð lífi hans.
Jesús fór með lærisveinum sínum út að vatninu og fylgdi mikill fjöldi úr Galíleu og úr Júdeu, frá Jerúsalem, Ídúmeu, landinu handan Jórdanar, og úr byggðum Týrusar og Sídonar kom til hans fjöldi manna er heyrt höfðu hve mikið hann gerði. Og Jesús bauð lærisveinum sínum að hafa til bát fyrir sig svo að mannfjöldinn þrengdi eigi að honum. En marga hafði hann læknað og því þustu að honum allir þeir sem einhver mein höfðu til að snerta hann. Og hvenær sem menn, sem haldnir voru óhreinum öndum, sáu hann féllu þeir fram fyrir honum og æptu upp: „Þú ert sonur Guðs.“
En Jesús lagði ríkt á við þá að þeir gerðu hann eigi kunnan.
Síðan fór Jesús til fjalls og kallaði til sín þá er hann sjálfur kaus og þeir komu til hans. Hann skipaði tólf er skyldu vera með honum og hann gæti sent út að prédika og gefið þeim vald til að reka út illa anda.
Jesús skipaði þá tólf: Símon, er hann gaf nafnið Pétur, Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróður hans, en þeim gaf hann nafnið Boanerges, sem þýðir þrumusynir, og Andrés, Filippus og Bartólómeus, Matteus og Tómas, Jakob Alfeusson, Taddeus og Símon vandlætara og Júdas Ískaríot, þann er sveik hann.
Biblíulestur 11. desember – Lúk 19.1–10
Jesús kom til Jeríkó og gekk gegnum borgina. En þar var maður er Sakkeus hét. Hann var yfirtollheimtumaður og auðugur. Langaði hann að sjá hver Jesús væri en tókst það [...]
Biblíulestur á 2. sun í aðventu – Lúk 21.25–33
Tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á jörðu angist þjóða, ráðalausra við dunur hafs og brimgný. Menn munu falla í öngvit af ótta og kvíða fyrir því [...]
Biblíulestur 9.12.2023 – Slm 68.1–15
Guð rís upp, óvinir hans tvístrast, þeir sem hata hann flýja fyrir augliti hans. Þeir munu feykjast burt líkt og reykur feykist burt, eins og vax bráðnar í eldi þannig [...]
Biblíulestur 8. desember – Jes 34.17
Hann hefur varpað hlutkesti fyrir þau, með eigin hendi hefur hann skipt landinu milli þeirra með mælivað: Þau munu eiga það um aldur og ævi og búa þar frá einni [...]
Biblíulestur 7. desember – Jes 34.1–16
Gangið nær, þjóðir, svo að þér heyrið, hlýðið á, lýðir. Jörðin heyri og allt sem á henni er, heimurinn og allt sem í honum býr. Drottinn er reiður öllum þjóðum, [...]
Biblíulestur 6. desember – Job 22.21–30
Náðu sáttum við Guð og lifðu í friði. Þá hlýturðu velgengni. Þiggðu ráð úr munni hans, leggðu þér orð hans á hjarta. Snúirðu þér til Hins almáttka og auðmýkir þig, [...]