Biblíulestur 25. apríl – Okv 29.1–13
Þeim sem oft hefur verið átalinn en þrjóskast við
verður skyndilega hrundið og engin lækning fæst.
Þegar réttlátum vex máttur gleðst þjóðin
en þegar ranglátir drottna stynur þjóðin.
Sá sem elskar visku gleður föður sinn
en sá sem leggur lag sitt við skækjur glatar eigum sínum.
Konungurinn eflir landið með rétti
en þungar álögur eyða það.
Smjaðri maður fyrir náunga sínum
leggur hann net fyrir fætur hans.
Í misgjörð vonds manns er honum búin snara
en réttlátur maður fagnar og gleðst.
Réttlátur maður kynnir sér málefni hinna lágt settu
en ranglátur maður hirðir ekki um að kynna sér þau.
Spottarar æsa upp borgina
en vitrir menn lægja reiðina.
Þegar vitur maður á í þrætu við afglapa
reiðist og hlær afglapinn en lausn fæst engin.
Blóðvargarnir hata hinn ráðvanda
en réttvísir menn láta sér annt um líf hans.
Heimskinginn eys út allri reiði sinni
en vitur maður hefur stjórn á henni.
Þegar valdhafinn hlýðir á lygaorð
verða allir þjónar hans sekir.
Fátæklingurinn og kúgarinn mætast,
Drottinn ljær ljós augum beggja.
Biblíulestur á 3. sun í aðventu – Matt 11.2–10
Jóhannes heyrði í fangelsinu um verk Krists. Þá sendi hann honum orð með lærisveinum sínum og spurði: „Ert þú sá sem koma skal eða eigum við að vænta annars?“ Jesús [...]
Biblíulestur 16.12.2023 – Slm 68.16–26
Fjall Guðs er Basansfjall, tindótt fjall er Basansfjall. Hví lítið þér, tindar, öfundarauga fjallið er Guð hefur kjörið sér til bústaðar, þar sem Drottinn mun ætíð búa? Vagnar Guðs eru [...]
Biblíulestur 15. desember – Lúk 10.1–12
Eftir þetta kvaddi Drottinn til aðra, sjötíu og tvo að tölu, og sendi þá á undan sér, tvo og tvo, í hverja þá borg og stað sem hann ætlaði sjálfur [...]
Biblíulestur 14. desember – Jer 31.31–40
Þeir dagar koma, segir Drottinn, þegar ég geri nýjan sáttmála við Ísraelsmenn og Júdamenn. Hann verður ekki eins og sáttmálinn sem ég gerði við feður þeirra þegar ég tók í [...]
Biblíulestur 13. desember – Jer 31.18–30
Ég heyrði kvein Efraíms: „Þú hirtir mig og ég tók hirtingunni líkt og óvaninn kálfur. Lát mig snúa heim, þá skal ég snúa við því að þú ert Drottinn, Guð [...]
Biblíulestur 12. desember – Jak 4.1–10
Af hverju koma stríð og af hverju sennur meðal ykkar? Af hverju öðru en girndum ykkar sem heyja stríð í limum ykkar? Þið girnist og fáið ekki, þið drepið og [...]