Fjall Guðs er Basansfjall,
tindótt fjall er Basansfjall.
Hví lítið þér, tindar, öfundarauga
fjallið er Guð hefur kjörið sér til bústaðar,
þar sem Drottinn mun ætíð búa?
Vagnar Guðs eru tvisvar tíu þúsundir,
þúsundir á þúsundir ofan,
Drottinn kom frá Sínaí til helgidómsins.
Þú steigst upp til hæða,
hafðir á burt bandingja,
tókst við gjöfum frá mönnum,
jafnvel uppreisnarmönnum.
Drottinn Guð mun búa þar.
Lofaður sé Drottinn er ber byrðar vorar dag eftir dag,
Guð er hjálpráð vort. (Sela)
Guð er oss hjálpræðisguð
og alvaldur Drottinn bjargar frá dauðanum.
Guð sundurmolar höfuð óvina sinna,
hvirfil þess er lifir í sekt.
Drottinn segir: „Ég sæki þá frá Basan,
flyt þá frá djúpi hafsins
svo að þú megir baða fót þinn í blóði
og tungur hunda þinna fái sinn hlut af óvinunum.“
Menn horfa á inngöngu þína, ó Guð,
inngöngu Guðs míns og konungs í helgidóminn.
Söngvarar eru í fararbroddi,
þá strengleikarar
ásamt yngismeyjum er berja bumbur.