Guð rís upp, óvinir hans tvístrast,
þeir sem hata hann flýja fyrir augliti hans.
Þeir munu feykjast burt
líkt og reykur feykist burt,
eins og vax bráðnar í eldi
þannig tortímast óguðlegir fyrir augliti Guðs.
En réttlátir gleðjast, fagna fyrir augliti Guðs
og fyllast gleði.
Syngið fyrir Guði, vegsamið nafn hans,
hyllið hann sem þeysir yfir auðnina,
Drottinn er nafn hans, fagnið fyrir augliti hans.
Guð í sínum heilaga bústað
er faðir munaðarlausra og verndari ekkna.
Guð býr hinum einmana heimili,
leiðir hina fjötruðu til farsældar
en uppreisnarseggir skulu búa í hrjóstrugu landi.
Þegar þú fórst út á undan lýð þínum, Guð,
skundaðir yfir öræfin, (Sela)
þá nötraði jörðin, regn draup af himni
frammi fyrir Guði, Drottni Sínaí,
frammi fyrir Guði, Ísraels Guði.
Þú lést rigna ríkulega á arfleifð þína, ó Guð,
og lífgaðir örmagna landið,
þar settist hjörð þín að, ó Guð,
þú annaðist hina þurfandi af gæsku þinni.
Drottinn lætur boðskap út ganga,
heill her kvenna flytur sigurfréttina:
„Konungar hersveitanna flýja, þeir flýja,
en hún, sem heima situr, skiptir herfangi.
Hvort viljið þér liggja milli fjár í réttunum?
Vængir dúfunnar eru lagðir silfri
og fjaðrir hennar glóandi gulli.“
Þegar Hinn almáttki tvístraði konungunum
snjóaði á Salmon.