Biblíulestur 21. apríl – Mrk 2.1–12
Nokkrum dögum síðar kom Jesús aftur til Kapernaúm. Þegar fréttist að hann væri heima söfnuðust þar svo margir að hvergi var lengur rúm, ekki einu sinni fyrir dyrum úti. Og Jesús flutti þeim orðið. Þá er komið með lama mann og báru fjórir. Þegar þeir gátu ekki komist með hann til Jesú fyrir fólkinu rufu þeir þekjuna uppi yfir honum, grófu þar í gegn og létu síga ofan rekkjuna sem hinn lami lá í. Þá er Jesús sér trú þeirra segir hann við lama manninn: „Barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar.“
Þar sátu nokkrir fræðimenn og hugsuðu með sjálfum sér: „Hví mælir þessi maður svo? Hann guðlastar. Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?“
Samstundis skynjaði Jesús að þeir hugsuðu þannig með sér og hann sagði við þá: „Hví hugsið þið slíkt í hjörtum ykkar? Hvort er auðveldara að segja við lama manninn: Syndir þínar eru fyrirgefnar, eða segja: Statt upp, tak rekkju þína og gakk? En til þess að þið vitið að Mannssonurinn hefur vald til að fyrirgefa syndir á jörðu, þá segi ég ykkur,“ – og nú talar hann við lama manninn: „Statt upp, tak rekkju þína og far heim til þín.“
Maðurinn stóð upp, tók jafnskjótt rekkjuna og gekk burt í allra augsýn svo að allir voru furðu lostnir, lofuðu Guð og sögðu: „Aldrei áður höfum við þvílíkt séð.“
Biblíulestur 23. nóvember – 2Kro 36.11–21
Sedekía var tuttugu og eins árs þegar hann varð konungur og ríkti í Jerúsalem ellefu ár. Hann gerði það sem illt var í augum Drottins, Guðs síns. Hann lét ekki [...]
Biblíulestur 22. nóvember – Róm 10.5–17
Móse ritar um réttlætið sem lögmálið veitir: „Sá maður sem breytir eftir boðum þess mun lífið fá af því.“ En réttlætið af trúnni mælir þannig: „Seg þú ekki í hjarta [...]
Biblíulestur 21. nóvember – Post 7.51–60
Þið harðsvíraðir og óumskornir í hjörtum og á eyrum, þið standið ávallt gegn heilögum anda eins og feður ykkar. Hver var sá spámaður sem feður ykkar ofsóttu eigi? Þeir drápu [...]
Biblíulestur 20. nóvember – Lúk 6.12–19
En svo bar við um þessar mundir að Jesús fór til fjalls að biðjast fyrir og var alla nóttina á bæn til Guðs. Og er dagur rann kallaði hann til [...]
Biblíulestur 19. nóvember – Matt 11.25–30
Á þeim tíma tók Jesús svo til orða: „Ég vegsama þig, faðir, Drottinn himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum en opinberað það smælingjum. Já, faðir, [...]
Biblíulestur 18.11.2023 – Slm 66.1–20
Fagnið fyrir Guði, gjörvallt jarðríki, syngið um hans dýrlega nafn, hyllið hann með lofgjörð, segið við Guð: Hversu óttaleg eru verk þín. Sakir mikilleiks máttar þíns hræsna óvinir þínir fyrir [...]