Fagnið fyrir Guði, gjörvallt jarðríki,
syngið um hans dýrlega nafn,
hyllið hann með lofgjörð,
segið við Guð: Hversu óttaleg eru verk þín.
Sakir mikilleiks máttar þíns hræsna óvinir þínir fyrir þér.
Öll jörðin lýtur þér og lofsyngur þér, lofsyngur nafni þínu. (Sela)
Komið og sjáið verk Guðs,
undursamleg verk hans meðal manna:
Hann breytti hafinu í þurrlendi,
þeir héldu fótgangandi yfir fljótið,
þá glöddumst vér yfir honum.
Hann ríkir um eilífð vegna máttar síns,
augu hans gefa gætur að þjóðunum,
uppreisnarmenn geta ekki staðið gegn honum. (Sela)
Þér lýðir, lofið Guð vorn
og látið hljóma lofsöng um hann.
Hann hélt oss á lífi,
varði fætur vora falli.
Þú reyndir oss, Guð,
hreinsaðir oss eins og þegar silfur er hreinsað,
þú leiddir oss í gildru,
lagðir þunga byrði á lendar vorar,
lést menn ríða yfir höfuð vor.
Vér höfum farið gegnum eld og vatn
en þú leiddir oss til allsnægta.
Ég kem með alfórnir í hús þitt,
efni þau heit mín við þig
sem varir mínar guldu
og munnur minn nefndi þá er ég var í nauðum staddur.
Ég færi þér alfórnir af feitum dýrum
ásamt fórnarreyk af hrútum,
ég fórna nautum og höfrum. (Sela)
Komið, hlustið, allir þér er óttist Guð,
ég mun segja frá öllu sem hann gerði fyrir mig.
Til hans hrópaði ég með munni mínum
en lofgjörð lá mér á tungu.
Hefði ég haft illt í huga
hefði Drottinn ekki hlustað
en Guð bænheyrði mig,
hann hlustaði á bænarkall mitt.
Lofaður sé Guð
er hvorki vísaði bæn minni á bug
né tók frá mér miskunn sína.