Biblíulestur – 18. maí – Jóh 16.5–15
Ég hef ekki sagt yður þetta frá öndverðu af því ég var með yður. En nú fer ég til hans sem sendi mig og enginn yðar spyr mig: Hvert fer þú? En hryggð hefur fyllt hjarta yðar af því að ég sagði yður þetta. En ég segi yður sannleikann: Það er yður til góðs að ég fari burt því ef ég fer ekki kemur hjálparinn ekki til yðar. En ef ég fer sendi ég hann til yðar. Þegar hann kemur mun hann sanna heiminum hvað er synd og réttlæti og dómur. Syndin er að þeir trúðu ekki á mig, réttlætið að ég fer til föðurins og þér sjáið mig ekki lengur og dómurinn að höfðingi þessa heims er dæmdur.
Enn hef ég margt að segja yður en þér getið ekki skilið það nú. En þegar andi sannleikans kemur mun hann leiða yður í allan sannleikann. Það sem hann segir yður hefur hann ekki frá sjálfum sér heldur mun hann segja yður það sem hann heyrir og kunngjöra yður það sem koma á. Hann mun gera mig dýrlegan því af mínu mun hann taka og kunngjöra yður. Allt sem faðirinn á er mitt. Því sagði ég að hann tæki af mínu og kunngjörði yður.
Biblíulestur 16. apríl – Matt 6.1-15
Ekki fyrir mönnum 1 Varist að iðka réttlæti yðar fyrir mönnum þeim til sýnis, annars eigið þér engin laun hjá föður yðar á himnum. 2 Þegar þú gefur ölmusu skaltu [...]
Biblíulestur 15. apríl – Jóh 10.11-16
11 Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina. 12 Sá sem er leigður og hvorki er hirðir né á sauðina, hann flýr og yfirgefur [...]
Biblíulestur 14. apríl – Slm 89.39-53
39 En nú hefur þú hafnað þínum smurða, útskúfað honum í reiði þinni, 40 þú hefur rift sáttmálanum við þjón þinn, vanhelgað kórónu hans og fleygt til jarðar. 41 Þú [...]
Biblíulestur 13. apríl – Matt 5.38-48
Verið fullkomin 38 Þér hafið heyrt að sagt var: Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. 39 En ég segi yður: Rísið ekki gegn þeim sem gerir yður mein. Nei, [...]
Biblíulestur 12. apríl – Matt 5.31-37
31 Þá var og sagt: Sá sem skilur við konu sína skal gefa henni skilnaðarbréf. 32 En ég segi yður: Hver sem skilur við konu sína, nema fyrir hórsök, verður [...]
Biblíulestur 11. apríl – Matt 5.21-30
Skjótur til sátta 21 Þér hafið heyrt að sagt var við forfeðurna: Þú skalt ekki morð fremja. Sá sem morð fremur skal svara til saka fyrir dómi. 22 En ég [...]