Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 17. maí – Slm 101.1–8

Davíðssálmur.
Ég vil syngja um náð og rétt,
lofsyngja þér, Drottinn.
Ég vil gefa gætur að vegi hins ráðvanda,
hvenær kemur þú til mín?
Í grandvarleik hjartans
vil ég ganga um í húsi mínu.
Ég vil ekki hafa illvirki fyrir augum,
ég hata þá sem aðhafast illt
og samneyti þeim ekki.
Svikult hjarta skal frá mér víkja,
illmenni vil ég eigi þekkja.
Rægi einhver vin sinn á laun
þagga ég niður í honum.
Þann sem hefur þótta í augum og hroka í hjarta
fæ ég ekki þolað.
Augu mín hvíla á hinum trúföstu í landinu,
þeir fá að búa hjá mér;
sá sem gengur veg hins ráðvanda
mun fá að þjóna mér.
Enginn má hafast við í húsi mínu
er svik fremur.
Sá sem fer með lygar
stenst ekki fyrir augum mínum.
Hvern morgun þagga ég niður
í öllum óguðlegum í landinu
og útrými úr borg Drottins
öllum illgjörðamönnum.

Biblíulestur 9. apríl – Matt 5.1-12

Fjallræðan 1 Þegar Jesús sá mannfjöldann gekk hann upp á fjallið. Þar settist hann og lærisveinar hans komu til hans. 2 Þá hóf hann að kenna þeim og sagði: 3„Sælir [...]

Biblíulestur 8. apríl – Jóh 20.19-31

Jesús birtist lærisveinunum 19 Um kvöldið þennan fyrsta dag vikunnar voru lærisveinarnir saman og höfðu læst dyrum af ótta við Gyðinga. Þá kom Jesús, stóð mitt á meðal þeirra og [...]

Biblíulestur 5. apríl – Matt 4.1-17

Jesú freistað 1 Þá leiddi andinn Jesú út í óbyggðina til þess að djöfullinn gæti freistað hans. 2 Þar fastaði Jesús fjörutíu daga og fjörutíu nætur og var þá orðinn [...]

Fara efst