Biblíulestur – 16. maí – 1Kor 16.1–24
Hvað samskotin til hinna heilögu í Jerúsalem snertir, þá skuluð einnig þið fara með þau eins og ég hef fyrirskipað söfnuðunum í Galatíu. Hvern fyrsta dag vikunnar skal hvert ykkar leggja í sjóð heima hjá sér það sem efni leyfa til þess að ekki verði þá fyrst farið að efna til samskota þegar ég kem. En þegar ég svo kem mun ég senda þá sem þið teljið til þess fallna með gjöf ykkar til Jerúsalem og skrifa með þeim. Ef betra þykir að ég fari líka geta þeir orðið mér samferða.
Ég mun koma til ykkar er ég hef farið um Makedóníu því að um Makedóníu legg ég leið mína. Ég staldra ef til vill við hjá ykkur eða dvelst jafnvel vetrarlangt til þess að þið getið búið ferð mína, hvert sem ég þá kann að fara. Ég vona að Drottinn lofi mér að standa við hjá ykkur nokkra stund og að ég sjái ykkur ekki aðeins rétt í svip. Ég stend við í Efesus allt til hvítasunnu því að þar hafa mér opnast víðar dyr að miklu verki og ég þarf mörgum andstæðingum að mæta.
Ef Tímóteus kemur, þá sjáið til þess að hann geti öruggur verið hjá ykkur því að hann vinnur fyrir Drottin eins og ég. Enginn lítilsvirði hann. Greiðið heldur ferð hans svo að hann geti haldið áfram óhultur og komist til mín. Því að ég vænti hans með bræðrunum. En hvað bróður okkar Apollós varðar, þá hef ég eindregið hvatt hann til að verða samferða bræðrunum til ykkar. En hann var alls ófáanlegur til að fara nú en hann mun koma er hentugleikar hans leyfa.
Vakið, standið stöðug í trúnni, verið hugdjörf og styrk. Auðsýnið kærleika í öllu sem þið gerið.
Um eitt bið ég ykkur, systkin. Þið vitið að Stefanas og heimili hans eru frumgróði trúaðra í Akkeu og hafa helgað sig þjónustu við heilaga. Ég heiti á ykkur: Verið holl slíku fólki og öllum sem vinna og erfiða á sama hátt. Ég gleðst yfir návist þeirra Stefanasar, Fortúnatusar og Akkaíkusar. Þeir hafa bætt mér upp fjarvist ykkar, verið mér og ykkur til gleði. Hafið mætur á slíkum mönnum.
Söfnuðirnir í Asíu biðja að heilsa ykkur. Akvílas og Priska ásamt söfnuðinum í húsi þeirra biðja kærlega að heilsa ykkur í Drottins nafni. Öll systkinin biðja að heilsa ykkur. Heilsið hvert öðru með heilögum kossi.
Kveðjan er með eigin hendi minni, Páls. Ef einhver elskar ekki Drottin, sé hann bölvaður. Marana þa! Náðin Drottins Jesú sé með yður. Kærleikur minn er með yður öllum í Kristi Jesú.
Biblíulestur 4. apríl – Matt 3.1-17
Jóhannes skírari 1 Á þeim dögum kemur Jóhannes skírari fram og prédikar í óbyggðum Júdeu 2 með þessum orðum: „Takið sinnaskiptum, himnaríki er í nánd.“ 3 Nú rættist það sem [...]
Biblíulestur 3. apríl – Matt 2.13-23
Til Egyptalands 13 Þegar vitringarnir voru farnir þá vitrast engill Drottins Jósef í draumi og segir: „Rís upp, tak barnið og móður þess og flý til Egyptalands. Þar skaltu vera [...]
Biblíulestur 2. apríl – Lúk 24.13-35
Vertu hjá okkur 13 Tveir þeirra fóru þann sama dag til þorps nokkurs sem er um sextíu skeiðrúm[ frá Jerúsalem og heitir Emmaus. 14 Þeir ræddu sín á milli um [...]
Biblíulestur 1. apríl – Mrk 16.1-7 – Páskar
Hann er upp risinn 1 Þá er hvíldardagurinn var liðinn keyptu þær María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmsmyrsl til að fara og smyrja hann. 2 Og mjög árla [...]
Biblíulestur 31. mars – Slm 89.1-19
1 Etansmaskíl Esraíta.[ 2Um náðarverk Drottins vil ég syngja að eilífu og kunngjöra trúfesti þína með munni mínum frá kyni til kyns. 3Því að ég segi: Náð þín er traust [...]
Biblíulestur 30. mars – Jóh 19.16-30 – Föstudagurinn langi
16 Þá seldi hann þeim hann í hendur og bauð að láta krossfesta hann. Jesús krossfestur Hermennirnir tóku þá við Jesú. 17 Og hann bar kross sinn og fór út [...]