Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 15. maí – 1Kor 15.42–58

Þannig er og um upprisu dauðra. Sáð er forgengilegu en upp rís óforgengilegt. Sáð er í vansæmd en upp rís í vegsemd. Sáð er í veikleika en upp rís í styrkleika. Sáð er jarðneskum líkama en upp rís andlegur líkami. Ef jarðneskur líkami er til, þá er og til andlegur líkami. Þannig er og ritað: „Hinn fyrsti maður, Adam, varð lifandi sál,“ hinn síðari Adam lífgandi andi. En hið andlega kemur ekki fyrst heldur hið jarðneska, því næst hið andlega. Hinn fyrsti maður er frá jörðu, jarðneskur, hinn annar maður er frá himni. Eins og hinn jarðneski var, þannig eru og hinir jarðnesku og eins og hinn himneski, þannig eru og hinir himnesku. Og eins og við höfum borið mynd hins jarðneska munum við einnig bera mynd hins himneska.
Það segi ég, systkin, að hold og blóð getur eigi erft Guðs ríki, eigi erfir heldur hið forgengilega óforgengileikann. Sjá, ég segi ykkur leyndardóm: Við munum ekki öll deyja en öll munum við umbreytast, í einni svipan, á einu augabragði, við hinn síðasta lúður. Því lúðurinn mun gjalla og þá munu dauðir upp rísa óforgengilegir og við munum umbreytast. Forgengilegir og dauðlegir líkamir okkar eiga að breytast í óforgengilega líkami sem dauðinn nær ekki til.
En þegar það gerist og hið forgengilega breytist og verður ódauðlegt, þá rætist það sem ritað er:
Dauðinn er uppsvelgdur í sigur.
Dauði, hvar er sigur þinn?
Dauði, hvar er broddur þinn?

En syndin er broddur dauðans og lögmálið afl syndarinnar. Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesú Krist! Þess vegna, mín elskuðu systkin, verið staðföst, óbifanleg, síauðug í verki Drottins. Þið vitið að Drottinn lætur erfiði ykkar ekki verða til ónýtis.

Biblíulestur 28. mars – Matt 2.1-12

Koma vitringa 1 Þegar Jesús var fæddur í Betlehem í Júdeu á dögum Heródesar konungs komu vitringar frá Austurlöndum til Jerúsalem 2 og sögðu: „Hvar er hinn nýfæddi konungur Gyðinga? [...]

Biblíulestur 27. mars – Matt 1.18-23

Fæðing Jesú 18 Fæðing Jesú Krists varð á þennan hátt: María, móðir hans, var föstnuð Jósef. En áður en þau komu saman reyndist hún þunguð af heilögum anda. 19 Jósef, [...]

Biblíulestur 26. mars – Matt 1.1-17

Ættartala 1 Ættartala Jesú Krists, sonar Davíðs, sonar Abrahams. 2 Abraham gat Ísak, Ísak gat Jakob, Jakob gat Júda og bræður hans. 3 Júda gat Peres og Sara við Tamar, [...]

Biblíulestur 24. mars – Okv 17.1-9

1Betri er þurr brauðbiti í næði en veisla í húsi fullu af deilum. 2Hygginn þræll mun drottna yfir spilltum syni og taka erfðahlut með bræðrunum. 3Deiglan er fyrir silfrið og [...]

Fara efst