Biblíulestur – 19. maí – Jóh 10.1–21
„Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem kemur ekki um dyrnar inn í sauðabyrgið heldur fer yfir annars staðar, hann er þjófur og ræningi en sá sem kemur inn um dyrnar er hirðir sauðanna. Dyravörðurinn lýkur upp fyrir honum og sauðirnir heyra raust hans og hann kallar á sína sauði með nafni og leiðir þá út. Þegar hann hefur látið út alla sauði sína fer hann á undan þeim og þeir fylgja honum af því að þeir þekkja raust hans. En ókunnugum fylgja þeir ekki heldur flýja frá honum því þeir þekkja ekki raust ókunnugra.“
Þessa líkingu sagði Jesús þeim. En menn skildu ekki hvað það þýddi sem hann var að tala við þá.
Því sagði Jesús aftur: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Ég er dyr sauðanna. Allir þeir sem á undan mér komu eru þjófar og ræningjar enda hlýddu sauðirnir þeim ekki. Ég er dyrnar. Sá sem kemur inn um mig mun frelsast og hann mun ganga inn og út og finna haga. Þjófurinn kemur ekki nema til að stela og slátra og eyða. Ég er kominn til þess að þeir hafi líf, líf í fyllstu gnægð.
Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina. Sá sem er leigður og hvorki er hirðir né á sauðina, hann flýr og yfirgefur sauðina þegar hann sér úlfinn koma og úlfurinn hremmir þá og tvístrar þeim. Enda gætir hann sauðanna aðeins fyrir borgun og er ekkert annt um þá. Ég er góði hirðirinn og þekki mína og mínir þekkja mig eins og faðirinn þekkir mig og ég þekki föðurinn. Ég legg líf mitt í sölurnar fyrir sauðina. Ég á líka aðra sauði sem eru ekki úr þessu sauðabyrgi. Þá ber mér einnig að leiða, þeir munu heyra raust mína. Og það verður ein hjörð, einn hirðir. Faðirinn elskar mig af því að ég legg líf mitt í sölurnar til þess að ég fái það aftur. Enginn tekur það frá mér, ég legg það sjálfur í sölurnar. Ég hef vald til að leggja það í sölurnar og vald til að taka það aftur. Þetta hefur faðir minn boðið mér.“
Þessi orð urðu til þess að aftur kom upp ágreiningur með mönnum um Jesú. Margir sögðu: „Hann hefur illan anda og er genginn af vitinu. Hvað eruð þið að hlusta á hann?“
Aðrir sögðu: „Þessi orð mælir enginn sá sem hefur illan anda. Mundi illur andi geta gefið blindum sýn?“
Biblíulestur 22. apríl – Jóh 16.16-23
16 Innan skamms sjáið þér mig ekki lengur og aftur innan skamms munuð þér sjá mig.“ 17 Þá sögðu nokkrir lærisveina hans sín á milli: „Hvað er hann að segja [...]
Biblíulestur 21. apríl – Slm 90.1-17
1 Bæn guðsmannsins Móse. Drottinn, þú hefur verið oss athvarf frá kyni til kyns. 2Áður en fjöllin fæddust og jörðin og heimurinn urðu til, frá eilífð til eilífðar ert þú, [...]
Biblíulestur 20. apríl – Matt 7.15-29
Af ávöxtum þeirra 15 Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum en innra eru þeir gráðugir vargar. 16 Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort lesa menn vínber [...]
Biblíulestur 19. apríl – Lúk 17.11-19 – Sumardagurinn fyrsti
Hvar eru hinir níu? 11 Svo bar við á ferð Jesú til Jerúsalem að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. 12 Og er hann kom inn í þorp [...]
Biblíulestur 18. apríl – Matt 7.1-14
Dæmið ekki 1 Dæmið ekki svo að þér verðið ekki dæmd. 2 Því að með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmd verða og með þeim mæli, sem þér [...]
Biblíulestur 17. apríl – Matt 6.16-34
Þegar þú fastar 16 Þegar þér fastið þá verið ekki döpur í bragði eins og hræsnarar. Þeir afmynda andlit sín svo að engum dyljist að þeir fasta. Sannlega segi ég [...]