Biblíulestur – 8. júlí – 5Mós 2.16–37
Þegar allir vopnfærir menn þjóðarinnar voru dánir sagði Drottinn við mig: „Í dag muntu fara yfir Móabsland um Ar. Þegar þú nálgast Ammóníta skaltu hvorki sýna þeim fjandskap né ráðast á þá. Ég mun ekki gefa þér neitt af landi niðja Ammóns til eignar því að það hef ég gefið niðjum Lots til eignar.“
Það er einnig talið land Refaíta sem bjuggu þar fyrrum, en Ammónítar nefna þá Samsúmmíta og voru þeir mikil þjóð, fjölmenn og stórvaxin eins og Anakítar. Drottinn eyddi Refaítum til að rýma fyrir Ammónítum og Ammónítar slógu eign sinni á lönd þeirra og settust þar að í þeirra stað. Hið sama gerði Drottinn fyrir niðja Esaú, sem búa í Seír, þegar hann eyddi Hórítunum til að rýma fyrir þeim og niðjar Esaú slógu eign sinni á lönd þeirra og settust þar að í þeirra stað og hafa búið þar til þessa. Avítum, sem bjuggu í þorpum í grennd við Gasa, tortímdu Kaftórítar sem höfðu komið frá Kaftór og settust þar að í þeirra stað.
Búist til ferðar, haldið af stað og farið yfir Arnoná. Sjá, ég hef selt Amorítann Síhon, konung í Hesbon, og land hans þér í hendur. Þú skalt hefjast handa og taka landið til eignar, ráðast gegn honum og berjast við hann. Í dag mun ég taka að breiða út ótta við þig og skelfingu meðal allra þjóða undir himninum. Þær skjálfa þegar þær heyra um þig og engjast af ótta þegar þær sjá þig.“ Þá sendi ég menn úr eyðimörkinni Kedemót til Síhons, konungs í Hesbon, með svohljóðandi friðarskilmála: „Leyf mér að fara um land þitt. Ég skal fylgja veginum og hvorki víkja til hægri né vinstri af honum. Seldu mér korn til matar fyrir fé og vatn til drykkjar gegn greiðslu. Leyf mér aðeins að fara fótgangandi um landið eins og niðjar Esaú, sem búa í Seír, og Móabítar, sem búa í Ar, uns ég er kominn yfir Jórdan, inn í landið sem Drottinn, Guð okkar, gefur okkur.“
En Síhon, konungur í Hesbon, vildi ekki leyfa okkur að fara gegnum land sitt því að Drottinn, Guð þinn, hafði eflt baráttuvilja hans og hugrekki til þess að selja hann þér í hendur eins og nú er orðið. Og Drottinn sagði við mig: „Nú hefst ég handa og fæ þér Síhon og land hans. Þú skalt hefjast handa og slá eign þinni á landið.“
Síhon hélt nú ásamt öllum her sínum til að berjast við okkur við Jahas. En Drottinn, Guð okkar, seldi hann okkur í hendur og við gjörsigruðum hann, syni hans og allan her hans. Þá unnum við allar borgir hans og í hverri borg helguðum við jafnt karla, konur og börn banni og létum engan halda lífi. Við héldum aðeins búfénu eftir sem herfangi og öðrum ránsfeng úr borgunum sem við höfðum unnið.
Allt frá Aróer í jaðri Arnondalsins og borginni í dalnum og alla leið að Gíleað reyndist engin borg hafa of háa borgarmúra fyrir okkur: Drottinn, Guð okkar, gaf þær allar okkur á vald. En samkvæmt boði Drottins, Guðs okkar, nálgaðist þú ekki land Ammóníta, hvorki með fram Jabboká né við borgirnar í fjalllendinu.
Biblíulestur 21. febrúar – 1Jóh 2.7-17
7 Þið elskuðu, það er ekki nýtt boðorð sem ég rita ykkur, heldur gamalt boðorð sem þið hafið haft frá upphafi. Hið gamla boðorð er orðið sem þið heyrðuð. 8 [...]
Biblíulestur 20. febrúar – 1Jóh 1.1-2.6
1. kafli Orð lífsins 1 Efni vort er það sem var frá upphafi, það sem við höfum heyrt, það sem við höfum séð með augunum, það sem við horfðum á [...]
Biblíulestur 19. febrúar – Sef 3.14-20
Guð snýr við högum lýðs síns 14Hrópaðu af gleði, Síonardóttir! Fagnaðu hástöfum, Ísrael! Þú skalt kætast og gleðjast af öllu hjarta, dóttirin Jerúsalem. 15Drottinn hefur ógilt refsidóminn yfir þér, hann [...]
Biblíulestur 18. febrúar – Sef 3.6-13
6Þjóðum hef ég tortímt og steypt varðturnum þeirra. Stræti þeirra hef ég eytt af fólki svo að þar er enginn á ferð, borgir þeirra eru í rúst, mannlausar, og þar [...]
Biblíulestur 17. febrúar – Matt 25.14-30
Talentur 14 Svo er um himnaríki sem mann er ætlaði úr landi. Hann kallaði á þjóna sína og fól þeim eigur sínar. 15 Einum fékk hann fimm talentur, öðrum tvær [...]
Biblíulestur 16. febrúar – Slm 63.1-12
1 Sálmur eftir Davíð þá er hann var í Júdaeyðimörk. 2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég. Sál mína þyrstir eftir þér, hold mitt þráir þig, í vatnslausu landi, [...]