Biblíulestur – 9. júlí – 5Mós 3.1–13
Þegar við snerum á leið upp til Basan kom Óg, konungur í Basan, ásamt öllum her sínum til að berjast við okkur hjá Edreí. Þá sagði Drottinn við mig: „Óttastu hann ekki. Ég hef selt hann, allan her hans og land í þínar hendur. Farðu með hann eins og þú fórst með Síhon, konung Amoríta, sem ríkti í Hesbon.“
Drottinn, Guð okkar, seldi einnig Óg, konung í Basan, allan her hans og land okkur í hendur. Við sigruðum hann og létum engan komast undan. Þá tókum við allar borgir hans. Engin var sú borg að við næðum henni ekki frá þeim. Við tókum sextíu borgir, allt Argóbhérað, konungsríki Ógs í Basan. Allar þessar borgir voru víggirtar háum múrum, hliðum með tveimur vængjum og slagbröndum. Auk þeirra voru fjölmörg óvíggirt þorp. Við helguðum þessar borgir banni, fórum með þær eins og Síhon, konung í Hesbon, og helguðum jafnt karla, konur og börn banni en tókum allt búfé og ránsfenginn úr borgunum herfangi.
Þá tókum við úr höndum beggja konunga Amoríta landið austan Jórdanar, frá Arnonfljóti að Hermonfjalli. Sídoningar nefna Hermon Sirjon en Ammónítar Senír. Við tókum allar borgirnar á hásléttunni, allt Gíleað, allt Basan allt til Salka og Edreí, allar borgir í konungsríki Ógs í Basan. En Óg, konungur í Basan, var einn eftir af Refaítum. Rúm hans var úr járni. Er það ekki í Rabba, höfuðborg Ammóníta? Það er níu álna langt og fjögurra álna breitt, mælt með venjulegu alinmáli. Þetta er landið sem við tókum til eignar. Ég fékk Rúben og Gað svæðið frá Aróer, sem er við Arnondalinn, ásamt hálfu Gíleaðfjalllendi og borgunum þar.
Það sem eftir var af Gíleað og allt Basan, sem hafði verið hluti af konungsríki Ógs, allt Argóbhérað, fékk ég hálfum ættbálki Manasse. Allt Basan kallast land Refaíta.
Biblíulestur 27. febrúar – 1Jóh 4.1-21
Andi sannleikans og andi villunnar 1 Þið elskuðu, trúið ekki öllum sem segjast hafa andann, reynið þá heldur og komist að því hvort andinn sé frá Guði. Því margir falsspámenn [...]
Biblíulestur 26. febrúar – 1Jóh 3.11-24
Elskum hvert annað 11 Því að þetta er sá boðskapur sem þið hafið heyrt frá upphafi: Við eigum að elska hvert annað. 12 Ekki vera eins og Kain sem var [...]
Biblíulestur 25. febrúar – 1Jóh 3.1-10
Börn Guðs 1 Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn hefur auðsýnt okkur, að við skulum kallast Guðs börn. Og það erum við. Heimurinn þekkir okkur ekki vegna þess að hann þekkti hann [...]
Biblíulestur 24. febrúar – Mrk 4.26-32 – Biblíudagurinn
Sæðið grær og vex 26 Þá sagði Jesús: „Svo er Guðs ríki sem maður sái sæði í jörð. 27 Hann sefur síðan og vakir, nætur og daga, en sæðið grær [...]
Biblíulestur 23. febrúar – Okv 22.1-16
1Gott mannorð er dýrmætara en mikill auður, vinsældir eru betri en silfur og gull. 2Ríkur og fátækur mætast en Drottinn skapaði báða. 3Vitur maður sér ógæfuna og felur sig en [...]
Biblíulestur 22. febrúar – 1Jóh 2.18-29
Andkristur 18 Börn mín, hin síðasta stund er runnin upp. Þið hafið heyrt að andkristur kemur og nú eru líka margir andkristar komnir fram. Af því vitum við að það [...]