Biblíulestur – 10. júlí – 5Mós 3.14–29
Jaír, sonur Manasse, tók Argóbhéraðið að landi Gesúríta og Maakatíta og gaf því nafn sitt, nefndi Basan Havót Jaír eins og það heitir enn í dag.
Makír fékk ég Gíleað en afkomendum Rúbens og Gaðs fékk ég landið frá Gíleað og að Arnoná, miðjan dalinn og landið sem honum fylgdi, allt að Jabboká sem er á landamærum Ammóníta. Enn fremur fékk ég þeim Jórdanardal og Jórdan ásamt landinu umhverfis, frá Genesaretvatni að Arabavatni sem er salta vatnið undir Pisgahlíðum austan megin.
Eftirfarandi fyrirmæli gaf ég ykkur og sagði: „Drottinn, Guð ykkar, hefur fengið ykkur þetta land svo að þið takið það til eignar. Nú skuluð þið allir, sem vopnfærir eruð, halda tygjaðir til orrustu yfir Jórdan í fararbroddi bræðra ykkar, Ísraelsmanna. En konur ykkar, börn og fénaður – ég veit að þið eigið mikinn fénað – eiga að vera um kyrrt í borgunum sem ég hef gefið ykkur. Þegar Drottinn hefur veitt bræðrum ykkar hvíld eins og ykkur og þeir hafa einnig tekið landið til eignar sem Drottinn, Guð ykkar, gefur þeim handan við Jórdan, megið þið snúa aftur, hver til þess eignarlands sem ég hef gefið ykkur.“
Þá gaf ég Jósúa svohljóðandi fyrirmæli: „Þú hefur séð með eigin augum allt það sem Drottinn, Guð ykkar, hefur gert þessum tveimur konungum. Það sama mun Drottinn gera öllum konungsríkjunum sem þú ferð til handan árinnar. Óttist þau ekki því að Drottinn, Guð ykkar, berst sjálfur fyrir ykkur.“
Í sama mund bað ég Drottin um miskunn og sagði: „Drottinn Guð. Þú ert nú tekinn að sýna mér, þjóni þínum, mátt þinn og sterka hönd þína. Hver er sá guð, á himni eða jörðu, sem hefur unnið slíkar dáðir og máttarverk sem jafnast á við þín? Leyf mér að fara yfir ána og sjá landið góða handan Jórdanar, fjalllendið fagra og Líbanon.“
En Drottinn hafði reiðst mér ykkar vegna og hann bænheyrði mig ekki. Drottinn sagði við mig: „Nóg um það. Nefndu þetta aldrei framar við mig. Farðu upp á Pisgatind og horfðu í vestur, norður, suður og austur og litastu um því að yfir Jórdan munt þú ekki komast. Skipaðu Jósúa foringja, stappaðu í hann stálinu því að hann skal fara fyrir þessu fólki yfir ána og skipta einnig landinu, sem þú færð að sjá, í erfðahluti milli þeirra.“ Dvöldumst við nú um hríð í dalnum gegnt Bet Peór.
Biblíulestur 5. mars – 3Jóh 1-15
Kveðja 1 Öldungurinn heilsar elskuðum Gajusi sem ég ann í sannleika. 2 Ég bið þess, minn elskaði, að þér vegni vel í öllu, þú sért heill heilsu og þér líði [...]
Biblíulestur 4. mars – 2Jóh 1-13
Kveðja 1 Öldungurinn heilsar hinni útvöldu frú og börnum hennar sem ég elska sannarlega. Og ekki ég einn heldur einnig allir sem þekkja sannleikann. 2 Við gerum það sakir sannleikans [...]
Biblíulestur 3. mars – Mrk 8.31-38
Mannssonurinn á margt að líða 31 Þá tók Jesús að kenna þeim: „Mannssonurinn á margt að líða. Öldungarnir, æðstu prestarnir og fræðimennirnir munu útskúfa honum. Menn munu lífláta hann en [...]
Biblíulestur 2. mars – Slm 64.1-11
1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. 2Heyr, Guð, raust mína er ég kveina, varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins, 3skýl mér fyrir flokki illmenna, fyrir illvirkjamúg 4er hvetur tungur sínar sem sverð, [...]
Biblíulestur 1. mars – 1Jóh 5.13-21
Eilíft líf 13 Þetta hef ég skrifað ykkur sem trúið á nafn Guðs sonar til þess að þið vitið að þið eigið eilíft líf. 14 Og þetta er traustið sem [...]
Biblíulestur 28. febrúar – 1Jóh 5.1-12
Sigur trúarinnar 1 Hver sem trúir að Jesús sé Kristur er barn Guðs og hver sem elskar föðurinn elskar einnig barn hans. 2 Við vitum að við elskum börn Guðs [...]