Biblíulestur – 10. júlí – 5Mós 3.14–29
Jaír, sonur Manasse, tók Argóbhéraðið að landi Gesúríta og Maakatíta og gaf því nafn sitt, nefndi Basan Havót Jaír eins og það heitir enn í dag.
Makír fékk ég Gíleað en afkomendum Rúbens og Gaðs fékk ég landið frá Gíleað og að Arnoná, miðjan dalinn og landið sem honum fylgdi, allt að Jabboká sem er á landamærum Ammóníta. Enn fremur fékk ég þeim Jórdanardal og Jórdan ásamt landinu umhverfis, frá Genesaretvatni að Arabavatni sem er salta vatnið undir Pisgahlíðum austan megin.
Eftirfarandi fyrirmæli gaf ég ykkur og sagði: „Drottinn, Guð ykkar, hefur fengið ykkur þetta land svo að þið takið það til eignar. Nú skuluð þið allir, sem vopnfærir eruð, halda tygjaðir til orrustu yfir Jórdan í fararbroddi bræðra ykkar, Ísraelsmanna. En konur ykkar, börn og fénaður – ég veit að þið eigið mikinn fénað – eiga að vera um kyrrt í borgunum sem ég hef gefið ykkur. Þegar Drottinn hefur veitt bræðrum ykkar hvíld eins og ykkur og þeir hafa einnig tekið landið til eignar sem Drottinn, Guð ykkar, gefur þeim handan við Jórdan, megið þið snúa aftur, hver til þess eignarlands sem ég hef gefið ykkur.“
Þá gaf ég Jósúa svohljóðandi fyrirmæli: „Þú hefur séð með eigin augum allt það sem Drottinn, Guð ykkar, hefur gert þessum tveimur konungum. Það sama mun Drottinn gera öllum konungsríkjunum sem þú ferð til handan árinnar. Óttist þau ekki því að Drottinn, Guð ykkar, berst sjálfur fyrir ykkur.“
Í sama mund bað ég Drottin um miskunn og sagði: „Drottinn Guð. Þú ert nú tekinn að sýna mér, þjóni þínum, mátt þinn og sterka hönd þína. Hver er sá guð, á himni eða jörðu, sem hefur unnið slíkar dáðir og máttarverk sem jafnast á við þín? Leyf mér að fara yfir ána og sjá landið góða handan Jórdanar, fjalllendið fagra og Líbanon.“
En Drottinn hafði reiðst mér ykkar vegna og hann bænheyrði mig ekki. Drottinn sagði við mig: „Nóg um það. Nefndu þetta aldrei framar við mig. Farðu upp á Pisgatind og horfðu í vestur, norður, suður og austur og litastu um því að yfir Jórdan munt þú ekki komast. Skipaðu Jósúa foringja, stappaðu í hann stálinu því að hann skal fara fyrir þessu fólki yfir ána og skipta einnig landinu, sem þú færð að sjá, í erfðahluti milli þeirra.“ Dvöldumst við nú um hríð í dalnum gegnt Bet Peór.
Biblíulestur 10. mars – Lúk 22.31-34
Ég hef beðið fyrir þér 31 Símon, Símon, Satan krafðist að fá að sælda yður eins og hveiti svo að hismið kæmi í ljós. 32 En ég hef beðið fyrir [...]
Biblíulestur 9. mars – Slm 65.1-14
1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð. 2Þér ber lofsöngur, Guð á Síon, og við þig séu heitin efnd. 3Þú, sem heyrir bænir, til þín leita allir menn. 4Þegar misgjörðir vorar verða [...]
Biblíulestur 8. mars – Sak 2.1-17
Önnur sýn: Hornin fjögur 1 Ég leit upp og sá fjögur horn. 2 Og ég spurði engilinn, sem við mig talaði, og sagði: „Hvað er þetta?“ Hann svaraði: „Þetta eru [...]
Biblíulestur 7. mars – Sak 1.1-17
Hvatning til afturhvarfs 1 Í áttunda mánuði annars stjórnarárs Daríusar konungs barst orð Drottins Sakaría spámanni, syni Berekja Íddósonar: 2 Drottinn var afar reiður forfeðrum ykkar. 3 Segðu því við [...]
Biblíulestur 6. mars – Matt 9.14-17 – Öskudagur
Um föstu 14 Þá koma til Jesú lærisveinar Jóhannesar og segja: „Hví föstum við og farísear en þínir lærisveinar fasta ekki?“ 15 Jesús svaraði þeim: „Hvort geta brúðkaupsgestir verið hryggir [...]
Biblíulestur 5. mars – 3Jóh 1-15
Kveðja 1 Öldungurinn heilsar elskuðum Gajusi sem ég ann í sannleika. 2 Ég bið þess, minn elskaði, að þér vegni vel í öllu, þú sért heill heilsu og þér líði [...]