Ég hef beðið fyrir þér

31 Símon, Símon, Satan krafðist að fá að sælda yður eins og hveiti svo að hismið kæmi í ljós. 32 En ég hef beðið fyrir þér að trú þín þrjóti ekki. Og styrk þú trúsystkin þín[ þegar þú ert snúinn við.“
33 En Símon sagði við hann: „Drottinn, ég er reiðubúinn að fylgja þér bæði í fangelsi og dauða.“
34 Jesús mælti: „Ég segi þér, Pétur: Áður en hani galar í dag munt þú þrisvar hafa neitað því að þú þekkir mig.“