Biblíulestur 3. mars – Mrk 8.31-38

2019-02-04T19:22:14+00:00Sunnudagur 3. mars 2019|

Mannssonurinn á margt að líða

31 Þá tók Jesús að kenna þeim: „Mannssonurinn á margt að líða. Öldungarnir, æðstu prestarnir og fræðimennirnir munu útskúfa honum. Menn munu lífláta hann en hann mun upp rísa eftir þrjá daga.“ 32 Þetta sagði Jesús berum orðum. En Pétur tók hann á einmæli og fór að átelja hann. 33 Jesús sneri sér við, leit til lærisveina sinna, ávítaði Pétur og sagði: „Vík frá mér, Satan, eigi hugsar þú um það sem Guðs er heldur það sem manna er.“
34 Og Jesús kallaði til sín mannfjöldann ásamt lærisveinum sínum og sagði: „Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér. 35 Því að hver sem vill bjarga lífi sínu mun týna því og hver sem týnir lífi sínu vegna mín og fagnaðarerindisins mun bjarga því. 36 Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn en glata sálu sinni? 37 Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína? 38 Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð föður síns með heilögum englum mun hann blygðast sín fyrir hvern þann sem blygðast sín fyrir mig hjá þessari ótrúu og syndugu kynslóð.“

Title

Fara efst