Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 31. júlí – 1Jóh 2.7–21

Þið elskuðu, það er ekki nýtt boðorð sem ég rita ykkur, heldur gamalt boðorð sem þið hafið haft frá upphafi. Hið gamla boðorð er orðið sem þið heyrðuð. Eigi að síður er það nýtt boðorð, er ég rita ykkur, og sannindi þess birtast í honum og í ykkur því að myrkrið er að hverfa og hið sanna ljós er þegar farið að skína.
Sá sem segist vera í ljósinu og hatar bróður sinn, hann er enn þá í myrkrinu. Sá sem elskar bróður sinn býr í ljósinu og í honum er ekkert er leitt geti hann til falls. En sá sem hatar bróður sinn er í myrkrinu og lifir í myrkrinu og veit ekki hvert hann fer því að myrkrið hefur blindað augu hans.
Ég rita ykkur, börnin mín, af því að Guð hefur fyrirgefið ykkur syndir ykkar vegna Jesú Krists. Ég rita ykkur, foreldrar, af því að þið þekkið hann sem er frá upphafi. Ég rita ykkur, unglingar, af því að þið hafið sigrað hinn vonda.
Ég hef ritað ykkur, börn, af því að þið þekkið föðurinn. Ég hef ritað ykkur, foreldrar, af því að þið þekkið hann sem er frá upphafi. Ég hef ritað ykkur, unglingar, af því að þið eruð styrkir og orð Guðs býr í ykkur og þið hafið sigrað hinn vonda.
Elskið hvorki heiminn né það sem í heiminum er. Sá sem elskar heiminn elskar ekki föðurinn. Því að allt sem maðurinn girnist, allt sem glepur augað, allt oflæti vegna eigna er ekki frá föðurnum heldur frá heiminum. Og heimurinn fyrirferst og fýsn hans en sá sem gerir Guðs vilja varir að eilífu.
Börn mín, hin síðasta stund er runnin upp. Þið hafið heyrt að andkristur kemur og nú eru líka margir andkristar komnir fram. Af því vitum við að það er hin síðasta stund. Þeir komu úr okkar hópi en heyrðu okkur ekki til. Ef þeir hefðu heyrt okkur til þá hefðu þeir áfram verið með okkur. En þetta varð til þess að augljóst yrði að enginn þeirra heyrði okkur til.
Þið þekkið öll sannleikann því að Hinn heilagi hefur smurt ykkur anda sínum. Ég hef ekki skrifað ykkur vegna þess að þið þekkið ekki sannleikann heldur af því að þið þekkið hann og af því að engin lygi getur komið frá sannleikanum.

Biblíulestur 14. júlí – Lúk 1.57-66

Fæðing Jóhannesar 57 Nú kom sá tími að Elísabet skyldi verða léttari og ól hún son. 58 Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu hversu mikla miskunn Drottinn hafði auðsýnt henni [...]

Biblíulestur 13. júlí – Slm 72.12-20

12því að hann bjargar hinum snauða, sem hrópar á hjálp, og lítilmagnanum sem enginn hjálpar. 13Hann miskunnar sig yfir bágstadda og snauða og bjargar lífi hinna fátæku, 14frá ofbeldi og [...]

Biblíulestur 11. júlí – 2Mós 34.1-16

Nýjar lögmálstöflur 1 Drottinn sagði við Móse: „Högg þér tvær steintöflur eins og hinar fyrri. Ég mun rita á þessar töflur orðin sem stóðu á fyrri töflunum sem þú molaðir [...]

Biblíulestur 10. júlí – 2Mós 33.1-23

Fyrirmæli um brottför frá Sínaí 1 Drottinn sagði við Móse: „Haltu af stað. Farðu héðan upp eftir með fólkið, sem þú leiddir upp frá Egyptalandi, til landsins sem ég hét [...]

Biblíulestur 9. júlí – 2Mós 32.19-35

19 Þegar Móse nálgaðist búðirnar og sá kálfinn og hringdansinn blossaði reiði hans upp og hann kastaði töflunum úr höndum sér og molaði þær við fjallsræturnar. 20 Síðan tók hann [...]

Fara efst