17 Þú skalt ekki gera þér steypta guði.
18 Þú skalt halda hátíð hinna ósýrðu brauða. Þú skalt eta ósýrt brauð í sjö daga á ákveðnum tíma í abíbmánuði eins og ég hef boðið þér því að í abíbmánuði fórst þú frá Egyptalandi.
19 Allt sem opnar móðurlíf er mitt og allt það sem er karlkyns af fénaði þínum, frumburðir nauta og sauðfjár. 20Frumburð asna getur þú leyst með lambi en viljir þú ekki leysa hann skaltu hálsbrjóta hann. Þú skalt leysa sérhvern frumburð sona þinna og enginn tómhentur skal koma fyrir auglit mitt.
21 Sex daga skaltu vinna en hvílast sjöunda daginn, hvort heldur er tími plægingar eða uppskeru.
22 Þú skalt halda viknahátíðina, hátíð frumgróða hveitiuppskerunnar og hátíð ávaxtauppskerunnar við áramót.
23 Þrisvar á ári skal allt karlkyn meðal þín birtast fyrir augliti Drottins, Guðs Ísraels. 24 Þegar ég hef hrakið burt aðrar þjóðir undan þér og fært út landamæri þín skal enginn ásælast land þitt þegar þú, þrisvar á ári, ferð upp eftir til að birtast fyrir augliti Drottins, Guðs þíns.
25 Þú skalt ekki slátra og bera fram blóð sláturfórnar minnar með sýrðu brauði. Sláturfórn páskahátíðarinnar má ekki liggja yfir nótt til morguns.
26 Þú skalt færa það besta af frumgróða jarðar þinnar til húss Drottins, Guðs þíns.
Þú mátt ekki sjóða kið í mjólk móður sinnar.“
27 Drottinn sagði við Móse: „Skráðu þessi fyrirmæli því að samkvæmt þeim geri ég sáttmála við þig og Ísrael.“ 28Móse var með Drottni fjörutíu daga og fjörutíu nætur án þess að neyta brauðs eða vatns og hann skráði á töflurnar orð sáttmálans, boðorðin tíu.

Ljómi af andliti Móse

29 Þegar Móse var á leiðinni niður af Sínaífjalli með báðar töflurnar í höndum sér vissi hann ekki að ljómi stóð af andliti hans því að hann hafði talað við Drottin. 30 En Aron og allir Ísraelsmenn sáu að ljómi stóð af andliti hans svo að þeir þorðu ekki að koma nærri honum. 31 Þá kallaði Móse á þá og Aron og allir leiðtogar safnaðarins sneru aftur til hans og Móse ávarpaði þá. 32 Síðan komu allir aðrir Ísraelsmenn nær og hann skýrði þeim frá öllu því sem Drottinn hafði boðið honum á Sínaífjalli. 33 Þegar Móse hafði lokið máli sínu huldi hann andlit sitt með skýlu. 34En þegar Móse gekk fyrir auglit Drottins til að tala við hann tók hann af sér skýluna þar til hann gekk út aftur. Síðan gekk hann út og sagði Ísraelsmönnum frá því sem honum hafði verið falið. 35 Þegar Ísraelsmenn sáu andlit Móse sáu þeir að ljómi stóð af andliti hans. Þá huldi Móse andlit sitt aftur með skýlu þar til hann fór til að tala við Drottin.