Biblíulestur – 19. ágúst – 5Mós 12.1–16
Þetta eru þau lög og ákvæði sem þið skuluð fylgja af kostgæfni svo lengi sem þið lifið í landinu sem Drottinn, Guð forfeðra þinna, hefur fengið þér. Þið skuluð fylgja þeim svo lengi sem þið lifið í landinu.
Þið skuluð gereyða öllum helgistöðunum þar sem þjóðirnar, sem þið eigið að ryðja úr vegi, þjónuðu guðum sínum á háum fjöllum, hólum og undir hverju grænu tré. Þið skuluð rífa niður ölturu þeirra, brjóta merkisteina þeirra, brenna Asérustólpa þeirra í eldi og höggva skurðgoð þeirra niður og afmá nafn þeirra af staðnum.
Þið skuluð ekki dýrka Drottin, Guð ykkar, á sama hátt og þessar þjóðir heldur skuluð þið leita til þess staðar sem Drottinn, Guð ykkar, mun velja úr öllum löndum ættbálka ykkar með því að setja nafn sitt á hann svo að það búi þar. Þangað skalt þú fara og þangað skuluð þið færa brennifórnir ykkar og sláturfórnir, tíundir og afgjöld, heitfórnir og sjálfviljafórnir og frumburði nautgripa ykkar og fénaðar. Þar skuluð þið halda fórnarmáltíð frammi fyrir Drottni, Guði ykkar, og gleðjast ásamt fjölskyldum ykkar yfir öllu sem þið hafið aflað með höndum ykkar og Drottinn, Guð þinn, hefur blessað þig með.
Þið skuluð ekki hegða ykkur þá eins og við gerum hér í dag þegar hver gerir það sem honum gott þykir því að þið eruð ekki enn komin á hvíldarstaðinn og inn í erfðalandið sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér.
Þegar þið eruð komin yfir Jórdan og eruð sest að í landinu sem Drottinn, Guð ykkar, skiptir á milli ykkar í erfðalönd veitir hann ykkur frið fyrir öllum fjandmönnum ykkar umhverfis. Þegar þið búið þar óhult skuluð þið koma með allt sem ég býð ykkur á staðinn sem Drottinn, Guð ykkar, velur sér til að láta nafn sitt búa á, brennifórnir og sláturfórnir, tíundir og afgjöld og allar dýrmætu gjafirnar sem þið heitið Drottni. Þá skuluð þið gleðjast frammi fyrir Drottni, Guði ykkar, þið sjálf, synir ykkar og dætur, þrælar ykkar og ambáttir og Levítarnir sem búa í borgum ykkar því að þeir hafa hvorki fengið jarðnæði né erfðaland eins og þið. En gæt þess vel að færa ekki brennifórnir þínar á hvaða stað sem þér sýnist heldur á staðnum sem Drottinn velur í landi eins af ættbálkum þínum. Þar skaltu færa brennifórnir þínar og gera allt sem ég býð þér.
Hins vegar máttu slátra og neyta kjöts eins oft og þig lystir, í hvaða borg þinni sem vera skal í þeim mæli sem blessun Drottins, Guðs þíns, veitir þér. Jafnt óhreinir menn sem hreinir mega eta það eins og skógargeita- og hjartakjöt. En blóðsins megið þið ekki neyta heldur eigið þið að hella því á jörðina eins og vatni.
Biblíulestur 10. nóvember – Jóh 4.34-38
34 Jesús sagði við þá: „Minn matur er að gera vilja þess sem sendi mig og fullna verk hans. 35 Segið þið ekki: Enn eru fjórir mánuðir, þá kemur uppskeran? [...]
Biblíulestur 9. nóvember – Slm 78.52-64
52 Því næst hélt hann af stað með þjóð sína eins og fjársafn, leiddi hana eins og hjörð um eyðimörkina. 53 Hann leiddi þá óhulta og óttalausa en óvini þeirra [...]
Biblíulestur 8. nóvember – 2Kon 18.1-12
Saga Júdaríkisins Hiskía Júdakonungur 1 Á þriðja stjórnarári Hósea Elasonar Ísraelskonungs varð Hiskía Akasson Júdakonungur. 2 Hann var tuttugu og fimm ára þegar hann varð konungur og ríkti tuttugu og [...]
Biblíulestur 7. nóvember – 2Kon 17.19-41
19 Júdamenn hlýddu þó ekki boðum Drottins, Guðs síns, heldur fóru að þeim siðum sem Ísraelsmenn höfðu tamið sér. 20 Þess vegna hafnaði Drottinn allri þjóð Ísraels. Hann auðmýkti hana, [...]
Biblíulestur 6. nóvember – 2Kon 17.1-18
Hósea Ísraelskonungur og fall Samaríu 1 Á tólfta stjórnarári Akasar, konungs í Júda, varð Hósea Elason konungur yfir Ísrael og ríkti níu ár í Samaríu. 2Hann gerði það sem illt [...]
Biblíulestur 5. nóvember – 2Kon 16.7-20
7 Þá sendi Akas þessi boð til Tíglat Pílesers Assýríukonungs: „Ég er þræll þinn og sonur. Komdu hingað upp eftir og frelsaðu mig úr höndum Aramskonungs og Ísraelskonungs sem hafa [...]