Biblíulestur – 26. júlí – Okv 24.23–34
Þessi spakmæli eru líka eftir spekinga:
Hlutdrægni í dómi er röng.
Þeim sem segir við hinn seka: „Þú hefur rétt fyrir þér,“
honum formæla menn og þjóðir fordæma hann.
Þeim sem fella réttan úrskurð mun farnast vel,
þeir munu hljóta ríkulega blessun.
Að veita rétt svör
er eins og að gefa koss.
Sinntu útiverkunum og ljúktu þeim á akrinum,
síðan getur þú byggt þér hús.
Vitnaðu ekki gegn náunga þínum án gildrar ástæðu,
eða vilt þú svíkja með orðum þínum?
Segðu ekki: „Eins og hann gerði mér,
eins ætla ég að gera honum,
ég ætla að veita manninum makleg málagjöld.“
Ég gekk fram hjá akri letingja nokkurs,
fram hjá víngarði heimsks manns.
Hann var allur vaxinn þistlum,
hann var alþakinn netlum
og steingarðurinn umhverfis hann var hruninn.
Ég sá þetta og veitti því athygli,
horfði á það og lét mér það að kenningu verða:
Sofa ögn enn, blunda ögn enn,
leggja saman hendurnar ögn enn til að hvílast,
þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi
og skorturinn eins og vopnaður maður.
Biblíulestur 9. febrúar – Matt 20.1-16
Í víngarði 1 Jesús sagði þessa dæmisögu: „Líkt er um himnaríki og húsbónda einn sem gekk út árla morguns að ráða verkamenn í víngarð sinn. 2 Hann samdi við verkamennina [...]
Biblíulestur 8. febrúar – Slm 86.1-11
1 Bæn Davíðs. Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig því að ég er hjálparvana og snauður. 2Vernda líf mitt því að ég er þér trúr. Þú ert Guð minn, [...]
Biblíulestur 7. febrúar – Róm 6.1-23
Skírð til nýs lífs 1 Hvað merkir nú þetta? Eigum við að vera áfram í syndinni til þess að náðin verði því meiri? 2 Fjarri fer því! Við sem dóum [...]
Biblíulestur 6. febrúar – Róm 5.1-21
Réttlætt af trú 1 Réttlætt af trú höfum við því frið við Guð sakir Drottins vors Jesú Krists. 2 Hann hefur veitt okkur aðgang að þeirri náð sem við lifum [...]
Biblíulestur 5. febrúar – Róm 4.13-25
Fyrirheitið og Abraham 13 Það var ekki vegna hlýðni við lögmálið að Abraham og niðjar hans fengu fyrirheitið um að erfa heiminn heldur vegna þeirrar trúar sem réttlætir. 14 Ef [...]
Biblíulestur 4. febrúar – Róm 4.1-12
Trú Abrahams 1 Hvað skal þá segja um forföður vorn Abraham, hvað ávann hann? 2 Ef hann varð réttlættur vegna verka sinna mætti hann hrósa sér. Þó ekki fyrir Guði. [...]