Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 11. september – 2Kor 2.1–17

En það ásetti ég mér að koma ekki aftur til ykkar með hryggð. Ef ég hryggi ykkur, hver er þá sá sem gleður mig? Sá sem ég er að hryggja? Ég skrifaði einmitt þetta til þess að þeir sem áttu að gleðja mig skyldu ekki hryggja mig er ég kæmi. Ég hef það traust til ykkar allra að gleði mín sé gleði ykkar allra. Af mikilli þrengingu og hjartans trega skrifaði ég ykkur með mörgum tárum, ekki til þess að þið skylduð hryggjast heldur til þess að þið skylduð komast að raun um þann mikla kærleik sem ég ber til ykkar.
En ef nokkur hefur orðið til þess að valda öðrum hryggð, þá hefur hann ekki aðeins hryggt mig heldur að vissu leyti hryggt ykkur öll svo að ég geri ekki enn meira úr því. Látið þeim manni nægja þá refsingu sem allflest ykkar hafa veitt honum. Því ættuð þið nú öllu heldur að fyrirgefa honum og uppörva hann til þess að hann sökkvi ekki niður í allt of mikla hryggð. Þess vegna bið ég ykkur að sýna honum kærleika í reynd. Því að í þeim tilgangi skrifaði ég ykkur, til þess að ég fengi að vita hvernig þið reyndust, hvort þið væruð hlýðin í öllu. En hverjum sem þið fyrirgefið, þeim fyrirgef ég líka. Og það sem ég hef fyrirgefið, hafi ég þurft að fyrirgefa nokkuð, þá hefur það verið vegna ykkar fyrir augliti Krists til þess að Satan nái ekki tökum á okkur því að ekki er okkur ókunnugt um vélráð hans.
En er ég kom til Tróas til að boða fagnaðarerindið um Krist og Drottinn hafði þar opnað mér dyr til að starfa, þá hafði ég enga eirð í mér af því að ég hitti ekki Títus, bróður minn, svo að ég kvaddi og fór til Makedóníu.
En Guði séu þakkir sem fer með mig í óslitinni sigurför Krists og lætur mig alls staðar breiða út þekkinguna um sig eins og þekkan ilm. Því að Guði til dýrðar er ég ilmur sem flyt Krist bæði til þeirra sem frelsast og til þeirra sem glatast. Þeim sem glatast er ég banvænn daunn til dauða, hinum lífgandi ilmur til lífs. Og hver er til þessa hæfur? Ekki er ég eins og hinir mörgu er pranga með Guðs orð heldur flyt ég það af hreinum huga frá Guði frammi fyrir augliti Guðs með því að ég er í samfélagi við Krist.

Biblíulestur 1. apríl – Jer 3.1-13

Sáttmálinn rofinn 1Ef maður rekur konu sína frá sér og hún fer og verður eiginkona annars manns, getur hún þá snúið til hans aftur? Mundi þetta land ekki vanhelgast af [...]

Biblíulestur 31. mars – Jer 2.29-37

Verðskulduð refsing 29 Hvers vegna ákærið þér mig? Þér hafið allir brugðist mér, segir Drottinn. 30 Til einskis hirti ég syni yðar, þeir létu sér ekki segjast. Eins og glefsandi [...]

Biblíulestur 30. mars – Jer 2.10-28

10Farið til eyja Kitta og litist um eða sendið til Kedars og spyrjist rækilega fyrir, gangið úr skugga um hvort annað eins hafi nokkru sinni átt sér stað. 11Hefur nokkur [...]

Biblíulestur 28. mars – Okv. 21.1-15

1Hjarta konungsins er sem lækir í hendi Drottins, hann sveigir þá hvert sem honum þóknast. 2Maðurinn telur alla hætti sína rétta en Drottinn vegur hjörtun. 3Að ástunda réttlæti og rétt [...]

Biblíulestur 27. mars – Jer 1.17-2.9

1. kafli Hlutverk spámannsins 17En sjálfur skalt þú gyrða lendar þínar, ganga fram og boða þeim allt sem ég býð þér. Láttu ekki hugfallast frammi fyrir þeim, ella svipti ég [...]

Fara efst