Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 26. október – Matt 9.1–8

Þá sté Jesús í bát og hélt yfir um og kom til borgar sinnar. Þar færa menn honum lama mann sem lá í rekkju. Þegar Jesús sá trú þeirra sagði hann við lama manninn: „Vertu hughraustur, barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar.“
Nokkrir fræðimenn hugsuðu þá með sjálfum sér: „Hann guðlastar!“
En Jesús þekkti hugsanir þeirra og sagði: „Hví hugsið þið illt í hjörtum ykkar? Hvort er auðveldara að segja: Syndir þínar eru fyrirgefnar, eða: Statt upp og gakk? „En til þess að þið vitið að Mannssonurinn hefur vald á jörðu að fyrirgefa syndir þá segi ég þér,“ – og nú talar hann við lama manninn: „Statt upp, tak rekkju þína og far heim til þín!“
Og hann stóð upp og fór heim til sín. En fólkið, sem horfði á þetta, varð óttaslegið og lofaði Guð sem gefið hafði mönnum slíkt vald.

Biblíulestur 6. janúar – Matt 2.1-12

Koma vitringa 1 Þegar Jesús var fæddur í Betlehem í Júdeu á dögum Heródesar konungs komu vitringar frá Austurlöndum til Jerúsalem 2 og sögðu: „Hvar er hinn nýfæddi konungur Gyðinga? [...]

Biblíulestur 4. janúar – Neh 13.1-14

Siðbót Nehemía 1 Um þessar mundir var lesið úr bók Móse fyrir fólkið. Þá fannst ritað í henni: „Hvorki Ammóníti né Móabíti má nokkru sinni ganga í söfnuð Guðs 2 [...]

Biblíulestur 3. janúar – Matt 22.41-46

Kristur er Drottinn 41 Þegar farísearnir voru saman komnir spurði Jesús þá: 42 „Hvað virðist ykkur um Krist? Hvers son er hann?“ Þeir svara: „Davíðs.“ 43 Hann segir: „Hvernig getur [...]

Biblíulestur 2. janúar – Slm 107.1-16

1Þakkið Drottni því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. 2Svo skulu hinir endurleystu Drottins segja, þeir er hann hefur leyst úr nauðum 3og safnað saman [...]

Fara efst