Biblíulestur – 15. nóvember – Slm 108.1–14
Ljóð. Davíðssálmur.
Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð,
ég vil syngja og leika.
Vakna þú, sál mín,
vakna þú, harpa og gígja,
ég ætla að vekja morgunroðann.
Ég lofa þig meðal lýðanna, Drottinn,
vegsama þig meðal þjóðanna
því að miskunn þín nær til himna
og trúfesti þín til skýjanna.
Hef þig hátt yfir himininn, Guð,
dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina.
Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr mig
til þess að þeir sem þú elskar megi frelsast.
Guð hefur sagt í helgidómi sínum:
„Ég vil fagna sigri, ég vil skipta Síkem,
mæla Súkkótdalinn.
Ég á Gíleað og ég á Manasse,
Efraím er hjálmurinn á höfði mér,
Júda veldissproti minn.
Móab er handlaug mín,
ég fleygi skóm mínum á Edóm,
ég hrósa sigri yfir Filisteu.“
Hver leiðir mig til virkisborgarinnar,
hver fer með mig til Edóms?
Hefur þú eigi útskúfað oss, Guð,
og ferð eigi út með hersveitum vorum?
Veit oss lið gegn fjandmönnunum
því að hjálp manna er einskis nýt.
Með Guðs hjálp munum vér vinna afrek
og hann mun troða óvini vora fótum.
Biblíulestur 11. maí – 1Kor 12.1–11
Gáfur andans 1 En svo ég minnist á gáfur andans, systkin,[ þá vil ég ekki að þið séuð fáfróð um þær. 2 Þið vitið að þegar þið voruð heiðingjar létuð [...]
Biblíulestur 10. maí – 1Kor 10.14–22
14 Forðist þess vegna skurðgoðadýrkun, mín elskuðu. 15 Ég tala til ykkar sem skynsamra manna. Metið sjálf það sem ég segi. 16 Bikar blessunarinnar sem vér blessum, er hann ekki [...]
Biblíulestur 9. maí – Jóh 14.12–14
12 Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir á mig mun einnig gera þau verk sem ég geri. Og hann mun gera meiri verk en þau því ég fer [...]
Biblíulestur 8. maí – Slm 116.1-19
1Ég elska Drottin af því að hann heyrir grátbeiðni mína. 2Hann hneigði eyra sitt að mér þegar ég ákallaði hann. 3Snörur dauðans umkringdu mig, angist heljar kom yfir mig, ég [...]
Biblíulestur 7. maí – 2Kon 1.1–8
Elía og Ahasía konungur 1 Eftir lát Akabs gerði Móab uppreisn gegn Ísrael. 2 Ahasía féll í gegnum handriðið á efri hæð húss síns í Samaríu og meiddist. Hann sendi [...]
Biblíulestur 6. maí – Ef 3.1–13
Leyndardómur Krists opinber 1 Þess vegna er það að ég, Páll, bandingi Krists Jesú vegna ykkar, heiðinna manna, beygi kné mín. 2 Víst hafið þið heyrt um þá náð sem [...]