Biblíulestur – 16. nóvember – Matt 25.1–13
Enn sagði Jesús: „Þá er líkt um himnaríki og tíu meyjar sem fóru til móts við brúðgumann með lampa sína. Fimm þeirra voru fávísar en fimm hyggnar. Þær fávísu tóku lampa sína en höfðu ekki olíu með sér en hinar hyggnu tóku olíu með á könnum ásamt lömpum sínum. Nú dvaldist brúðgumanum og urðu þær allar syfjaðar og sofnuðu.
Um miðnætti kvað við hróp: Brúðguminn kemur, farið til móts við hann. Þá vöknuðu meyjarnar allar og tóku til lampa sína. En þær fávísu sögðu við þær hyggnu: Gefið oss af olíu yðar, það er að slokkna á lömpum vorum. Þær hyggnu svöruðu: Nei, hún nægir aldrei handa öllum. Farið heldur til kaupmanna og kaupið handa yður. Meðan þær voru að kaupa kom brúðguminn og þær sem viðbúnar voru gengu með honum inn til brúðkaupsins og dyrum var lokað.
Seinna komu hinar meyjarnar og sögðu: Herra, herra, ljúk upp fyrir oss. En hann svaraði: Sannlega segi ég yður, ég þekki yður ekki.
Vakið því, þér vitið ekki daginn né stundina.
Biblíulestur 17. maí – Heb 2.1–9
Hjálpræði Guðs 1 Þess vegna ber okkur að gefa því enn betur gaum er við höfum heyrt svo að við berumst eigi afleiðis. 2 Fyrst orðið, sem englar fluttu,[ hefur [...]
Biblíulestur 16. maí – Jóh 15.18–25
18 Ef heimurinn hatar yður þá vitið að hann hefur hatað mig fyrr en yður. 19 Væruð þér af heiminum mundi heimurinn elska sína. Heimurinn hatar yður af því að [...]
Biblíulestur 15. maí – Slm 117.1-2
1Lofið Drottin, allar þjóðir, vegsamið hann, allir lýðir, 2því að miskunn hans er voldug yfir oss og trúfesti Drottins varir að eilífu. Hallelúja.
Biblíulestur 14. maí – Kól 2.6–15
6 Þið hafið tekið á móti Kristi, Drottni Jesú. Lifið því í honum. 7 Verið rótfest í honum og byggð á honum, staðföst í trúnni, eins og ykkur hefur verið [...]
Biblíulestur Uppstigningardagur – Lk 24.44-53
44 Og hann sagði við þau: „Meðan ég var enn meðal ykkar sagði ég ykkur: Allt sem ritað er um mig í lögmáli Móse, spámönnunum og sálmunum á að rætast.“ [...]
Biblíulestur 12. maí – Ef 6.10–20
Alvæpni Guðs 10 Að lokum: Styrkist í Drottni og krafti máttar hans. 11 Klæðist alvæpni Guðs til þess að þið getið staðist vélabrögð djöfulsins. 12 Því að baráttan sem við [...]