Biblíulestur – 22. nóvember – Slm 109.1–15
Til söngstjórans. Davíðssálmur.
Þú, Guð lofsöngs míns, ver eigi hljóður
því að óguðlegan og svikulan munn opna þeir gegn mér,
tala við mig með ljúgandi tungu.
Með hatursorðum umkringja þeir mig
og áreita mig að ástæðulausu.
Þeir launa elsku mína með fjandskap
en ég endurgeld þeim með bæn.
Þeir launa mér gott með illu
og elsku mína með hatri.
Sendið óguðlegan gegn mótstöðumanni mínum
og ákærandinn standi honum til hægri handar.
Hann gangi sakfelldur frá dómi
og bæn hans verði honum til áfellis.
Dagar hans verði fáir
og annar hljóti embætti hans.
Börn hans verði föðurlaus
og kona hans ekkja,
börn hans fari á flæking og vergang,
rekin úr rústum heimilis síns.
Okrarinn leggi snöru fyrir allar eigur hans
og ókunnugir ræni afla hans.
Enginn sýni honum líkn
og enginn aumkist yfir föðurlaus börn hans.
Niðjar hans verði afmáðir,
nöfn þeirra þurrkuð út í næstu kynslóð.
Drottinn minnist misgjörðar feðra hans
og synd móður hans verði ekki afmáð,
séu þær ætíð fyrir augum Drottins,
hann afmái minningu hans af jörðinni
Biblíulestur 22. júní – Post 1.1–9
1 Fyrri sögu mína, Þeófílus, samdi ég um allt sem Jesús gerði og kenndi frá upphafi, 2 allt til þess dags er hann varð upp numinn. Áður hafði hann gefið [...]
Biblíulestur 21. júní – Jes 66.7–14
7Áður en kona fær hríðir hefur hún fætt, áður en hún tekur jóðsótt hefur hún alið sveinbarn. 8Hver hefur heyrt annað eins, hver séð nokkuð þessu líkt? Fæðist land á [...]
Biblíulestur 20. júní – Jóh 6.37–40
37 Allt sem faðirinn gefur mér mun koma til mín og þann sem til mín kemur mun ég alls eigi brott reka. 38 Ég er stiginn niður af himni, ekki [...]
Biblíulestur 19. júní – Slm 119.17-32
3 17Ger vel til þjóns þíns svo að ég lifi og megi halda orð þín. 18Ljúk upp augum mínum svo að ég sjái dásemdirnar í lögmáli þínu. 19Ég er gestur [...]
Biblíulestur 18. júní – 1Pét 5.1–7
Verið algáð 1 Öldungana ykkar á meðal hvet ég sem einnig er öldungur og vottur písla Krists og einnig á hlutdeild í þeirri dýrð sem mun opinberast: 2 Verið hirðar [...]
Biblíulestur 17. júní – Matt 7.7-12
7 Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. 8 Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur [...]