Biblíulestur – 3. október – 5Mós 20.1–14
Þegar þú ferð í hernað gegn fjandmönnum þínum og sérð hesta, hervagna og her sem er fjölmennari en þinn skaltu ekki óttast þá því að Drottinn, Guð þinn, er með þér, hann sem leiddi þig frá Egyptalandi. Þegar þið eruð í þann veginn að leggja til orrustu skal presturinn ganga fram, ávarpa herinn og segja: „Heyr, Ísrael. Í dag leggið þið til orrustu gegn fjandmönnum ykkar. Látið ekki hugfallast, óttist ekki, skelfist hvorki né hræðist andspænis þeim því að Drottinn, Guð ykkar, er með í för til að berjast fyrir ykkur við fjandmenn ykkar og veita ykkur sigur.“
Því næst eiga eftirlitsmennirnir að ávarpa herinn og segja: „Hver sá sem byggt hefur nýtt hús en ekki vígt það enn skal fara og snúa aftur heim til sín svo að hann falli ekki í orrustunni og einhver annar vígi það. Hver sá sem plantað hefur víngarð en hefur enn engar nytjar haft af honum skal snúa aftur heim til sín svo að hann falli ekki í orrustunni og einhver annar njóti uppskerunnar. Hver sá sem hefur fastnað sér konu en hefur ekki enn tekið saman við hana skal fara og snúa aftur heim til sín svo að hann falli ekki í orrustunni og einhver annar gangi að eiga hana.“
Enn fremur skulu eftirlitsmennirnir bæta við ávarpið til hersins og segja: „Hver sá maður, sem er hræddur og hugdeigur, skal fara héðan og snúa aftur heim til sín svo að bræðrum hans fallist ekki hugur eins og honum.“
Þegar eftirlitsmennirnir hafa lokið ávarpi sínu til hersins skulu fyrirliðar skipaðir og þeir taka við stjórn. Þegar þú býst til að herja á borg skaltu fyrst bjóða henni friðarskilmála. Ef hún gengur að þeim og lýkur hliðum sínum upp fyrir þér skulu allir borgarbúar vinna fyrir þig kvaðavinnu og gerast lýðskyldir þér. En hafni hún því að gera við þig friðarsáttmála og kjósi að heyja við þig orrustu skalt þú setjast um hana. Þegar Drottinn, Guð þinn, gefur þér hana á vald skaltu höggva allt karlkyns þar með sverðseggjum. Þú mátt hins vegar taka að herfangi konur, börn og búfé og allt annað sem í borginni er og þú getur rænt. Þú mátt nýta þér herfangið sem þú hefur tekið af fjandmönnum þínum því að Drottinn, Guð þinn, hefur gefið þér það.
Biblíulestur 28. apríl – Opb 20.1–10
Árin þúsund 1 Og ég sá engil stíga niður af himni. Hann hélt á lykli undirdjúpsins og stórum fjötri í hendi sér. 2 Og hann tók drekann, þann gamla höggorm, [...]
Biblíulestur 27. apríl – 1Kon 19.9–18
9 Þar kom hann að helli og svaf þar um nóttina. Allt í einu kom orð Drottins til hans: „Hvað ertu að gera hér, Elía?“ 10 Hann svaraði: „Af brennandi [...]
Biblíulestur 26. apríl – 1Kon 19.1–8
Elía á Hóreb 1 Akab sagði Jesebel frá öllu sem Elía hafði gert og að hann hefði drepið alla spámennina með sverði. 2 Jesebel sendi þá mann til Elía með [...]
Biblíulestur 25. apríl – Jóh 15.1–8
Vínviðurinn og greinarnar 1 „Ég er hinn sanni vínviður og faðir minn er vínyrkinn. 2 Hverja þá grein á mér sem ber ekki ávöxt sníður hann af og hverja þá [...]
Biblíulestur 24. apríl – Okv 26.17-28
17Sá sem blandar sér í annarra deilu er eins og sá sem grípur í eyrun á hundi sem fram hjá hleypur. 18Eins og óður maður sem þeytir eldibröndum og örvum [...]
Biblíulestur 23. apríl – 5Mós 6.4–19
4 Heyr, Ísrael. Drottinn, Guð vor, Drottinn er einn. [ 5 Þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. 6 [...]