Biblíulestur – Gamlársdagur 31. desember – Lúk 13.6–9
Þá sagði Jesús þeim þessa dæmisögu: „Maður nokkur átti fíkjutré gróðursett í víngarði sínum. Hann kom og leitaði ávaxtar á því og fann ekki. Hann sagði þá við víngarðsmanninn: Í þrjú ár hef ég nú komið og leitað ávaxtar á fíkjutré þessu og ekki fundið. Högg það upp. Hví á það að vera engum til gagns? En hann svaraði honum: Herra, lát það standa enn þetta ár þar til ég hef grafið um það og borið að áburð. Má vera að það beri ávöxt síðan. Annars skaltu höggva það upp.“
Biblíulestur 26. febrúar – Okv 31.1–9
Orð Lemúels konungs í Massa sem móðir hans kenndi honum: Hvað á ég að segja þér, sonur minn, sonur kviðar míns, sonur áheita minna? Gefðu konum ekki kraft þinn, þrek [...]
Biblíulestur 25. febrúar – Sef 1.14–2.3
Í nánd er hinn mikli dagur Drottins, hann er í nánd og færist óðfluga nær. Bitran hljóm fær dagur Drottins og beiskleg verða óp kappans. Dagur reiði verður dagur sá, [...]
Biblíulestur 24. febrúar – Sef 1.1–13
Orð Drottins sem kom til Sefanía Kúsísonar, Gedaljasonar, Amarjasonar, Hiskíasonar á dögum Jósía Amónssonar Júdakonungs. Ég mun gereyða öllu af yfirborði jarðar, segir Drottinn. Ég mun eyða mönnum og skepnum, [...]
Biblíulestur 23. febrúar – 2Tím 4.6–22
Nú er svo komið að mér verður fórnfært og tíminn er kominn að ég taki mig upp. Ég hef barist góðu baráttunni, hef fullnað skeiðið, hef varðveitt trúna. Og nú [...]
Biblíulestur 22. febrúar – 2Tím 3.10–4.5
En þú hefur fylgt mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði í ofsóknum og þjáningum, slíkum sem ég varð fyrir í Antíokkíu, Íkóníum og Lýstru. Slíkar ofsóknir þoldi [...]
Biblíulestur 21. febrúar – 2Tím 2.20–3.9
Á stóru heimili eru ekki einungis gullker og silfurker heldur og tréker og leirker. Sum eru til viðhafnar, önnur til hversdagsnota. Sá sem fær sig hreinan gert af slíkum ranglætisverkum [...]