Biblíulestur – 30. desember – Kól 1.1–11
Páll, að vilja Guðs postuli Krists Jesú, og Tímóteus, bróðir vor, heilsa þeim í Kólossu sem eru trúuð og helguð systkin í Kristi. Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum.
Ég þakka Guði, föður Drottins vors Jesú Krists, ávallt er ég bið fyrir ykkur. Ég hef heyrt um trú ykkar á Krist Jesú og um kærleikann sem þið berið til allra heilagra vegna vonarinnar um það sem þið eigið geymt í himnunum og þið hafið áður heyrt um í orði sannleikans, fagnaðarerindinu. Það er ekki aðeins komið til ykkar heldur alls heimsins og ber ávöxt og vex eins og það hefur líka gert hjá ykkur frá þeim degi er þið heyrðuð það og sannfærðust um náð Guðs. Hið sama hafið þið og numið af Epafrasi, elskuðum samþjóni okkar, sem er trúr þjónn Krists í ykkar þágu. Hann hefur og sagt okkur frá kærleika ykkar sem andinn hefur vakið með ykkur.
Frá þeim degi, er ég heyrði þetta, hef ég því ekki látið af að biðja fyrir ykkur. Ég bið þess að Guð láti anda sinn auðga ykkur að þekkingu á vilja sínum með allri speki og skilningi svo að þið breytið eins og Guði líkar og þóknist honum á allan hátt, að þið berið ávöxt með hvers kyns góðum verkum og vaxið að þekkingu á Guði. Hann styrki ykkur á allar lundir með dýrðarmætti sínum svo að þið fyllist þolgæði í hvívetna og umburðarlyndi og getið með gleði þakkað föðurnum sem hefur gert ykkur fært að fá arfleifð heilagra í ljósinu.
Biblíulestur 20. febrúar – Lúk 8.4–15
Nú var mikill fjöldi saman kominn og menn komu til Jesú úr hverri borg af annarri. Þá sagði hann þessa dæmisögu: „Sáðmaður gekk út að sá sæði sínu. Og þá [...]
Biblíulestur 19. febrúar – Slm 138
Eftir Davíð. Ég vil þakka þér af öllu hjarta, lofsyngja þér frammi fyrir guðunum. Ég fell fram, sný að þínu heilaga musteri og lofa nafn þitt sakir miskunnar þinnar og [...]
Biblíulestur 18. febrúar – 2Tím 2.1–19
Þú barnið mitt, Tímóteus, ver styrkur í náðinni sem veitist í Kristi Jesú. Það sem þú heyrðir mig tala í margra votta viðurvist skalt þú fá í hendur trúum mönnum [...]
Biblíulestur 17. febrúar – 2Tím 1.1–18
Páll, postuli Krists Jesú, að vilja Guðs sendur til að boða fyrirheitið um lífið í Kristi Jesú, heilsar Tímóteusi, elskuðu barni sínu. Náð, miskunn og friður frá Guði föður og [...]
Biblíulestur 16. febrúar – Matt 11.2–30
Jóhannes heyrði í fangelsinu um verk Krists. Þá sendi hann honum orð með lærisveinum sínum og spurði: „Ert þú sá sem koma skal eða eigum við að vænta annars?“ Jesús [...]
Biblíulestur 15. febrúar – Matt 10.21–11.1
Bróðir mun selja bróður í dauða og faðir barn sitt. Börn munu rísa gegn foreldrum og valda þeim dauða. Allir munu hata yður af því að þér trúið á mig. [...]