Biblíulestur – 29. desember – Ef 6.10–24
Að lokum: Styrkist í Drottni og krafti máttar hans. Klæðist alvæpni Guðs til þess að þið getið staðist vélabrögð djöfulsins. Því að baráttan sem við eigum í er ekki við menn af holdi og blóði heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessa myrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimnum. Takið því alvæpni Guðs til þess að þið getið veitt mótstöðu á hinum vonda degi og haldið velli þegar þið hafið sigrað allt.
Standið því gyrt sannleika um lendar ykkar og klædd réttlætinu sem brynju og skóuð á fótunum með fúsleik til að flytja fagnaðarboðin um frið. Takið umfram allt skjöld trúarinnar sem þið getið slökkt með öll logandi skeyti hins vonda. Setjið upp hjálm hjálpræðisins og grípið sverð andans, Guðs orð. Gerið það með bæn og beiðni og biðjið á hverri tíð í anda. Verið þannig árvökul og stöðug í bæn fyrir öllum heilögum. Biðjið fyrir mér að mér verði gefin orð að mæla, þá er ég lýk upp munni mínum, til þess að ég kunngjöri með djörfung leyndardóm fagnaðarerindisins. Boðberi þess er ég í fjötrum mínum. Biðjið að ég geti flutt það með djörfung eins og mér ber að tala.
En til þess að þið fáið einnig að vita um hagi mína, hvernig mér líður, þá mun Týkíkus, minn elskaði bróðir og trúi aðstoðarmaður í þjónustu Drottins, skýra ykkur frá öllu. Ég sendi hann til ykkar einkum í því skyni að þið fáið að vita hvernig mér líður og til þess að hann uppörvi ykkur.
Friður sé með söfnuðinum og kærleikur, með trúnni frá Guði föður og Drottni Jesú Kristi. Náð sé með öllum þeim sem elska Drottin vorn Jesú Krist með ódauðlegum kærleik.
Biblíulestur 14. febrúar – Matt 10.1–20
Og Jesús kallaði til sín lærisveina sína tólf og gaf þeim vald til að reka út óhreina anda og lækna hvers kyns sjúkdóm og veikindi. Nöfn postulanna tólf eru þessi: [...]
Biblíulestur 13. febrúar – Matt 20.1–16
Jesús sagði þessa dæmisögu: „Líkt er um himnaríki og húsbónda einn sem gekk út árla morguns að ráða verkamenn í víngarð sinn. Hann samdi við verkamennina um denar í daglaun [...]
Biblíulestur 12. febrúar – Slm 137
Við Babýlonsfljót sátum vér og grétum er vér minntumst Síonar. Á pílviðina þar hengdum vér upp gígjur vorar því að þar heimtuðu verðir vorir söngljóð og kúgarar vorir kæti: „Syngið [...]
Biblíulestur 11. febrúar – Matt 9.18–38
Meðan Jesús mælti þetta við þá kom forstöðumaður einn, laut honum og sagði: „Dóttir mín var að skilja við, kom og legg hönd þína yfir hana, þá mun hún lifna.“ [...]
Biblíulestur 10. febrúar – Matt 9.1–17
Þá sté Jesús í bát og hélt yfir um og kom til borgar sinnar. Þar færa menn honum lama mann sem lá í rekkju. Þegar Jesús sá trú þeirra sagði [...]
Biblíulestur 9. febrúar – Matt 8.23–34
Nú fór Jesús í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. Þá gerði svo mikið veður á vatninu að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. Þeir fara til, vekja hann [...]