Biblíulestur – 28. desember – Lúk 2.22–33
En er hreinsunardagar þeirra voru úti eftir lögmáli Móse fóru þau með hann upp til Jerúsalem til að færa hann Drottni, en svo er ritað í lögmáli Drottins: „Allt karlkyns, er fyrst fæðist af móðurlífi, skal helgað Drottni,“ og til að bera fram fórn, eins og segir í lögmáli Drottins, „tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur“.
Þá var í Jerúsalem maður er Símeon hét. Hann var réttlátur og guðrækinn og vænti þess að Guð frelsaði Ísrael. Heilagur andi var yfir honum og hafði hann vitrað honum að hann skyldi ekki deyja fyrr en hann hefði séð Krist Drottins. Að leiðsögn andans kom hann í helgidóminn. Og er foreldrarnir færðu þangað sveininn Jesú til að fara með hann eftir venju lögmálsins tók Símeon hann í fangið, lofaði Guð og sagði:
Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara
eins og þú hefur heitið mér
því að augu mín hafa séð hjálpræði þitt,
sem þú hefur fyrirbúið í augsýn allra lýða,
ljós til opinberunar heiðingjum
og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Faðir hans og móðir undruðust það er sagt var um hann.
Biblíulestur 8. febrúar – Matt 8.14–22
Jesús kom í hús Péturs og sá að tengdamóðir hans lá með sótthita. Hann snart hönd hennar og sótthitinn fór úr henni. Hún reis á fætur og gekk honum fyrir [...]
Biblíulestur 7. febrúar – Matt 8.1–13
Nú gekk Jesús niður af fjallinu og fylgdi honum mikill mannfjöldi. Þá kom til hans líkþrár maður, laut honum og sagði: „Drottinn, ef þú vilt getur þú hreinsað mig.“ Jesús [...]
Biblíulestur 6. febrúar – Matt 17.1–9
Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes, bróður hans, og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann [...]
Biblíulestur 5. febrúar – Slm 136.10–26
Hann laust Egypta og deyddi frumburði þeirra, miskunn hans varir að eilífu, leiddi Ísrael burt frá þeim, miskunn hans varir að eilífu, með sterkri hendi og útréttum armi, miskunn hans [...]
Biblíulestur 4. febrúar – Matt 7.15–29
Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum en innra eru þeir gráðugir vargar. Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort lesa menn vínber af þyrnum eða fíkjur af [...]
Biblíulestur 3. febrúar – Matt 7.1–14
Dæmið ekki svo að þér verðið ekki dæmd. Því að með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmd verða og með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt [...]