Biblíulestur – 27. desember – Okv 27.1–14
Hælstu ekki um af morgundeginum
því að þú veist ekki hvað dagurinn ber í skauti sínu.
Láttu aðra hrósa þér, ekki þinn eigin munn,
annarra varir, ekki þínar eigin.
Steinar eru þungir og sandurinn sígur í
en gremja afglapans er þyngri en hvort tveggja.
Heiftin er grimm og reiðin er svæsin
en hver fær staðist öfundina?
Betri eru átölur í hreinskilni
en ást sem leynt er.
Vel meint eru vinar sárin
en viðbjóðslegir fjandmanns kossar.
Saddur maður treður hunang undir fótum
en hungruðum manni er remman sæt.
Eins og fugl, floginn úr hreiðri,
svo er maður sem flúinn er af heimili sínu.
Ilmolía og reykelsi gleðja hjartað
en indælli er vinur en ilmandi viður.
Yfirgefðu ekki vin þinn né vin föður þíns
og gakktu ekki í hús bróður þíns á óheilladegi þínum.
Betri er granni í grennd en bróðir í fjarska.
Öðlastu visku, sonur minn, og gleddu hjarta mitt
svo að ég geti svarað þeim orði sem smána mig.
Vitur maður sér ógæfuna og felur sig
en einfeldningar halda áfram og gjalda þess.
Taktu skikkjuna af þeim sem hefur gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan,
taktu veð af þeim sem hefur gengið í ábyrgð fyrir framandi konu.
Blessi maður náunga sinn snemma morguns með háreysti
skal það metið sem formæling.
Biblíulestur 2. febrúar – Matt 6.16–34
Þegar þér fastið þá verið ekki döpur í bragði eins og hræsnarar. Þeir afmynda andlit sín svo að engum dyljist að þeir fasta. Sannlega segi ég yður, þeir hafa tekið [...]
Biblíulestur 1. febrúar – Matt 6.1–15
Varist að iðka réttlæti yðar fyrir mönnum þeim til sýnis, annars eigið þér engin laun hjá föður yðar á himnum. Þegar þú gefur ölmusu skaltu ekki láta þeyta lúður fyrir [...]
Biblíulestur 31. janúar – Matt 5.38–48
Þér hafið heyrt að sagt var: Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. En ég segi yður: Rísið ekki gegn þeim sem gerir yður mein. Nei, slái einhver þig á [...]
Biblíulestur 30. janúar – Matt 8.23–27
Nú fór Jesús í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. Þá gerði svo mikið veður á vatninu að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. Þeir fara til, vekja hann [...]
Biblíulestur 29. janúar – Okv 30.17–33
Það auga, sem gerir gys að föður sínum og hafnar hlýðni við móður sína, munu hrafnarnir við lækinn kroppa úr og arnarungarnir eta. Þrennt er það sem mér þykir undursamlegt [...]
Biblíulestur 28. janúar – Matt 5.31–37
Þá var og sagt: Sá sem skilur við konu sína skal gefa henni skilnaðarbréf. En ég segi yður: Hver sem skilur við konu sína, nema fyrir hórsök, verður til þess [...]