Hann laust Egypta og deyddi frumburði þeirra,
miskunn hans varir að eilífu,
leiddi Ísrael burt frá þeim,
miskunn hans varir að eilífu,
með sterkri hendi og útréttum armi,
miskunn hans varir að eilífu.
Hann klauf Sefhafið,
miskunn hans varir að eilífu,
og leiddi Ísrael í gegnum það,
miskunn hans varir að eilífu.
Hann steypti faraó og her hans í Sefhafið,
miskunn hans varir að eilífu.
Hann leiddi þjóð sína yfir auðnina,
miskunn hans varir að eilífu,
sigraði mikla konunga,
miskunn hans varir að eilífu,
felldi volduga konunga,
miskunn hans varir að eilífu,
Síhon, konung Amoríta,
miskunn hans varir að eilífu,
og Óg, konung í Basan,
miskunn hans varir að eilífu.
Hann gaf þeim land þeirra að erfð,
miskunn hans varir að eilífu,
erfðahlut handa Ísrael, þjóni sínum,
miskunn hans varir að eilífu.
Hann minntist vor í lægingu vorri,
miskunn hans varir að eilífu,
bjargaði oss frá fjandmönnum vorum,
miskunn hans varir að eilífu.
Hann fæðir allt sem lifir,
miskunn hans varir að eilífu.
Þakkið Guði himinsins,
miskunn hans varir að eilífu.