Eftir Davíð.
Ég vil þakka þér af öllu hjarta,
lofsyngja þér frammi fyrir guðunum.
Ég fell fram, sný að þínu heilaga musteri
og lofa nafn þitt sakir miskunnar þinnar og trúfesti
því að þú gerðir nafn þitt og orð meira öllu öðru.
Þegar ég hrópaði bænheyrðir þú mig,
þú veittir mér hugrekki og jókst mér kraft.
Allir konungar jarðar skulu lofa þig, Drottinn,
er þeir heyra orðin af munni þínum.
Þeir skulu syngja um vegu Drottins
því að mikil er dýrð Drottins.
Drottinn er hár en lítur þó til hins lága,
þekkir hinn drambláta í fjarska.
Gangi ég í gegnum þrengingar
lætur þú mig lífi halda,
þá réttir þú fram hönd þína gegn reiði óvina minna
og hægri hönd þín bjargar mér.
Drottinn mun fullna verk sitt fyrir mig.
Drottinn, miskunn þín varir að eilífu.
Yfirgef eigi verk handa þinna.