Orð Lemúels konungs í Massa
sem móðir hans kenndi honum:
Hvað á ég að segja þér, sonur minn,
sonur kviðar míns,
sonur áheita minna?
Gefðu konum ekki kraft þinn,
þrek þitt þeim sem táldraga konunga.
Ekki sæmir það konungum, Lemúel,
ekki sæmir það konungum að drekka vín
eða höfðingjum áfengur drykkur.
Þeir kynnu að drekka og gleyma lögunum
og ganga á rétt hinna fátæku.
Gefið áfengan drykk hinum lánlausa
og vín þeim sem er beiskur í lund.
Drekki þeir og gleymi fátækt sinni
og minnist ekki framar mæðu sinnar.
Ljúktu upp munni þínum fyrir hinn mállausa,
fyrir málstað allra lánleysingja.
Ljúktu upp munni þínum, dæmdu af réttvísi,
réttu hlut hinna voluðu og snauðu.