Orð Drottins sem kom til Sefanía Kúsísonar, Gedaljasonar, Amarjasonar, Hiskíasonar á dögum Jósía Amónssonar Júdakonungs.

Ég mun gereyða öllu af yfirborði jarðar,
segir Drottinn.
Ég mun eyða mönnum og skepnum,
ég mun eyða fuglum himinsins og fiskum sjávarins,
ég mun leiða hina óguðlegu til falls
og þurrka út mennina af ásjónu jarðarinnar,
segir Drottinn.
Ég mun hefja hönd mína gegn Júda
og öllum Jerúsalembúum
og afmá af þeim stað öll ummerki Baals,
nöfn hofgoðanna og prestanna,
þá sem falla fram á húsþökum
fyrir herskörum himinsins
og þá sem falla fram fyrir Drottni
og sverja við hann en sverja þó við Milkóm,
og eins þá sem snúið hafa baki við Drottni
og hvorki leita Drottins
né spyrja hann ráða.

Verið hljóð frammi fyrir Drottni Guði
því að dagur Drottins er í nánd.
Drottinn hefur efnt til sláturfórnar,
gesti sína hefur hann þegar helgað.
Á fórnardegi Drottins
mun ég refsa höfðingjunum
og konungssonunum
og öllum þeim sem bera erlend klæði.
Á þeim degi refsa ég
öllum þeim sem stökkva yfir þröskuldinn,
þeim sem fylla hús Drottins síns
með ofbeldi og svikum.
Á þeim degi, segir Drottinn,
munu neyðaróp berast úr Fiskhliðinu,
kveinstafir frá nýja borgarhverfinu
og angistaróp frá hæðunum.
Þeir munu kveina sem búa í lágborginni
því að allir kaupmenn verða horfnir
og afmáðir allir þeir er silfur vega.
Á þeim degi mun ég grandskoða Jerúsalem með ljóskerum
og hegna þeim sem liggja andvaralausir
og hugsa með sér:
„Drottinn mun ekkert aðhafast, hvorki gott né illt.“
Auður þeirra verður að ránsfeng
og heimili þeirra að auðn.
Þeir munu byggja hús
en eigi búa í þeim,
gera sér víngarða
en ekki njóta vínsins.