Biblíulestur 7. janúar – Kól 2.6–19
Þið hafið tekið á móti Kristi, Drottni Jesú. Lifið því í honum. Verið rótfest í honum og byggð á honum, staðföst í trúnni, eins og ykkur hefur verið kennt, og auðug að þakklátsemi.
Gætið þess að láta engan hertaka ykkur með marklausu, villandi spekitali sem byggist á mannasetningum og er komið frá heimsvættunum en ekki frá Kristi. Í manninum Jesú býr öll fylling guðdómsins og þið hafið öðlast hlutdeild í fullkomnun hans sem er höfuð hvers kyns tignar og valds.
Í honum eruð þið umskorin þeirri umskurn sem ekki er með höndum gerð. Með umskurn Krists voruð þið afklædd hinum synduga líkama, greftruð með Kristi í skírninni og uppvakin til lífs með honum fyrir trúna á mátt Guðs sem vakti hann frá dauðum.
Þið voruð dauð sökum afbrota ykkar og umskurnarleysis. En Guð lífgaði ykkur ásamt honum þegar hann fyrirgaf okkur öll afbrotin. Hann afmáði skuldabréfið sem þjakaði okkur með ákvæðum sínum. Hann tók það burt með því að negla það á krossinn. Hann fletti vopnum tignirnar og völdin og leiddi þau fram opinberlega til háðungar þegar hann fór sína sigurför í Kristi.
Enginn skyldi því dæma ykkur fyrir mat eða drykk eða það sem snertir hátíðir, tunglkomur eða hvíldardaga. Slíkt er aðeins skuggi þess sem koma átti. Veruleikinn er Kristur. Látið þá ekki taka af ykkur hnossið sem stæra sig af auðmýkt sinni og engladýrkun og státa af sýnum sínum. Þeir hrokast upp af engu í sjálfshyggju í stað þess að halda sér við hann sem er höfuðið og styrkir allan líkamann og tengir hann saman með taugum og böndum svo að hann vex eins og Guð vill.
Biblíulestur Skírdagur – Jóh 13.1–15, 34–35
Hátíð páskanna var að ganga í garð. Jesús vissi að stund hans var komin og að hann færi burt úr þessum heimi til föðurins. Hann hafði elskað sína, þá sem [...]
Biblíulestur 13. apríl – Lúk 4.31–44
Jesús kom nú ofan til Kapernaúm, borgar í Galíleu, og kenndi þeim á hvíldardegi. Urðu menn mjög snortnir af kenningu hans því að vald fylgdi orðum hans. Í samkunduhúsinu var [...]
Biblíulestur 12. apríl – Lúk 4.16–30
En Jesús sneri aftur til Galíleu fylltur krafti andans og fóru fregnir af honum um allt nágrennið. Hann kenndi í samkundum þeirra og lofuðu hann allir. Jesús kom til Nasaret, [...]
Biblíulestur 11. apríl – Lúk 4.1–15
En Jesús sneri aftur frá Jórdan, fullur af heilögum anda. Andinn leiddi hann og í fjörutíu daga var hann í eyðimörkinni þar sem djöfullinn freistaði hans. Ekki neytti hann neins [...]
Biblíulestur Pálmasunnudagur – Jóh 12.1–16
Sex dögum fyrir páska kom Jesús til Betaníu þar sem Lasarus var, sá er hann vakti frá dauðum. Þar var honum búinn kvöldverður og Marta gekk um beina en Lasarus [...]
Biblíulestur 9. apríl – Slm 142
Maskíl eftir Davíð þegar hann var í hellinum. Bæn. Ég hrópa hátt til Drottins, hef rödd mína til Drottins og bið um miskunn. Ég úthelli fyrir honum kvíða mínum, tjái [...]