Biblíulestur – 23. júlí – 5Mós 7.7–16
Ekki var það vegna þess að þið væruð fjölmennari en allar aðrar þjóðir að Drottinn fékk ást á ykkur og valdi ykkur því að þið eruð fámennari en allar aðrar þjóðir. En sökum þess að Drottinn elskaði ykkur og hélt eiðinn sem hann sór feðrum ykkar leiddi hann ykkur út úr þrælahúsinu með sterkri hendi og keypti ykkur frjálsa úr hendi faraós Egyptalandskonungs. Vita skaltu: Drottinn, Guð þinn, hann einn er Guð, hinn trúfasti Guð sem heldur sáttmálann og veitir þeim heill í þúsund ættliði sem elska hann og halda boðorð hans. En hann endurgeldur þeim umsvifalaust sem hatar hann og afmáir hann. Hann hikar ekki heldur endurgeldur þeim umsvifalaust sem hatar hann. Þess vegna skaltu halda fyrirmælin, lögin og ákvæðin, sem ég set þér nú í dag, og framfylgja þeim.
Ef þið hlýðið á þessi ákvæði og haldið þau af kostgæfni mun Drottinn halda sáttmálann við þig og veita þér þá heill sem hann hét feðrum þínum. Hann mun elska þig, blessa þig og fjölga þér. Hann mun blessa ávöxt kviðar þíns og ávöxt lands þíns, korn þitt, vín, olíu, kálfa þína og lömb í landinu sem hann hét feðrum þínum að gefa þér. Þú munt hljóta meiri blessun en allar aðrar þjóðir. Meðal þín verður hvorki ófrjór karl né kona og ekkert af búfénaði þínum gelt. Drottinn mun bægja frá þér öllum sjúkdómum. Hann mun ekki leggja á þig neina af hinum þungbæru sóttum Egyptalands sem þú þekkir heldur mun hann leggja þær á fjandmenn þína. Þú skalt eyða öllum þjóðum sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér á vald. Hafðu enga samúð með þeim. Þú skalt ekki þjóna guðum þeirra því að þá gengur þú í gildru.
Biblíulestur 23. október – Slm 126
1 Helgigönguljóð. Þegar Drottinn sneri við hag Síonar [ var sem oss dreymdi. 2Þá fylltist munnur vor hlátri og tungur vorar fögnuði. Þá sögðu menn meðal þjóðanna: „Mikla hluti hefur [...]
Biblíulestur 22. október – Jes 42.10–17
Nýr lofsöngur 10Syngið Drottni nýjan söng, syngið lof hans frá endimörkum jarðar, hafið fagni og allt sem í því er, fjarlægar eyjar og íbúar þeirra. 11Eyðimörkin og borgir hennar hrópi [...]
Biblíulestur 21. október – Jes 29.17–24
Endurnýjun 17Er ekki skammt þar til Líbanon verður að aldingarði og Karmel talið skóglendi? 18Á þeim degi munu daufir heyra orð lesin af bók og augu blindra sjá þrátt fyrir [...]
Biblíulestur 20. október – Róm 2.17–29
Gyðingar og lögmálið 17 En nú kallar þú þig Gyðing, treystir á lögmálið og ert hreykinn af Guði þínum. 18 Þú þekkir vilja hans og kannt að meta rétt það [...]
Biblíulestur 19. október – Dan 6.19–29
19 Gekk konungur síðan heim í höll sína og var þar um nóttina og fastaði. Hann lét ekki færa frillur inn til sín og var andvaka um nóttina. 20 Konungur [...]
Biblíulestur 18. október – Dan 6.7–18
7 Þessir yfirhöfðingjar og héraðshöfðingjar skunduðu nú á konungs fund og sögðu: „Daríus konungur, megir þú lifa að eilífu. 8 Allir yfirhöfðingjar ríkisins, landstjórar, héraðshöfðingjar, ráðgjafar og landshöfðingjar hafa komið [...]