En Jesús sneri aftur frá Jórdan, fullur af heilögum anda. Andinn leiddi hann og í fjörutíu daga var hann í eyðimörkinni þar sem djöfullinn freistaði hans. Ekki neytti hann neins þá daga og er þeir voru liðnir var hann hungraður.
En djöfullinn sagði við hann: „Ef þú ert sonur Guðs þá bjóð þú steini þessum að hann verði að brauði.“
Og Jesús svaraði honum: „Ritað er: Eigi lifir maðurinn á einu saman brauði.“
Þá fór hann með hann upp og sýndi honum á augabragði öll ríki veraldar. Og djöfullinn sagði við Jesú: „Þér mun ég gefa allt þetta veldi og dýrð þess því að mér er það í hendur fengið og ég get gefið það hverjum sem ég vil. Ef þú fellur fram og tilbiður mig skal það allt verða þitt.“
Jesús svaraði honum: „Ritað er:
Drottin, Guð þinn, skalt þú tilbiðja
og þjóna honum einum.“
Þá fór djöfullinn með hann til Jerúsalem, setti hann á brún musterisins og sagði við hann: „Ef þú ert sonur Guðs þá kasta þér hér ofan
því að ritað er:
Hann mun fela englum sínum að gæta þín

og:
þeir munu bera þig á höndum sér,
að þú steytir ekki fót þinn við steini.“

Jesús svaraði honum: „Sagt hefur verið: Þú skalt ekki freista Drottins, Guðs þíns.“
Þegar djöfullinn hafði gefist upp við að fella hann vék hann frá honum að sinni.

En Jesús sneri aftur til Galíleu fylltur krafti andans og fóru fregnir af honum um allt nágrennið. Hann kenndi í samkundum þeirra og lofuðu hann allir.