Biblíulestur 9. janúar – Kól 3.12–4.1
Íklæðist því eins og Guðs útvalin, heilög og elskuð börn hjartagróinni meðaumkun, góðvild, auðmýkt, hógværð og langlyndi. Umberið hvert annað og fyrirgefið hvert öðru ef einhver hefur sök á hendur öðrum. Eins og Drottinn hefur fyrirgefið ykkur, svo skuluð þið og gera. En íklæðist yfir allt þetta elskunni sem bindur allt saman og fullkomnar allt.
Látið frið Krists ríkja í hjörtum ykkar því að Guð kallaði ykkur til að lifa saman í friði sem limi í einum líkama. Verið þakklát.
Látið orð Krists búa með ykkur í allri sinni auðlegð og speki. Fræðið og áminnið hvert annað og syngið Guði sætlega lof í hjörtum ykkar með sálmum, lofsöngvum og andlegum ljóðum. Hvað sem þið segið eða gerið, gerið það allt í nafni Drottins Jesú og þakkið Guði föður með hjálp hans.
Konur, verið undirgefnar eiginmönnum ykkar eins og sómir þeim er Drottni heyra til.
Karlar, elskið eiginkonur ykkar og verið ekki beiskir við þær.
Börn, verið hlýðin foreldrum ykkar í öllu því að það er Drottni þóknanlegt.
Feður, verið ekki höstugir við börn ykkar, það gerir þau ístöðulaus.
Þrælar, verið í öllu hlýðnir jarðneskum húsbændum ykkar, ekki með augnaþjónustu, eins og þeir er mönnum vilja þóknast, heldur af einlægni hjartans, af lotningu fyrir Drottni. Hvað sem þið gerið, þá gerið það af heilum huga eins og Drottinn ætti í hlut en ekki menn. Þið vitið og sjálfir að Drottinn mun veita ykkur arfleifðina að launum enda þjónið þið Drottni Kristi. Sá sem rangt gerir skal fá það endurgoldið sem hann gerði rangt og þar er ekki farið í manngreinarálit.
Þið sem eigið þræla, veitið þeim það sem rétt er og sanngjarnt og vitið að einnig þið eigið Drottin á himni.
Biblíulestur 26. apríl – Lúk 6.20–36
Þá hóf Jesús upp augun, leit á lærisveina sína og sagði: „Sælir eruð þér, fátækir, því að yðar er Guðs ríki. Sælir eruð þér sem nú hungrar því að þér [...]
Biblíulestur 25. apríl – Lúk 6.6–19
Annan hvíldardag gekk Jesús í samkunduna og kenndi. Þar var maður nokkur með visna hægri hönd. En fræðimenn og farísear höfðu nánar gætur á Jesú, hvort hann læknaði á hvíldardegi, [...]
Biblíulestur 24. apríl – Jóh 20.19–31
Um kvöldið þennan fyrsta dag vikunnar voru lærisveinarnir saman og höfðu læst dyrum af ótta við Gyðinga. Þá kom Jesús, stóð mitt á meðal þeirra og sagði við þá: „Friður [...]
Biblíulestur 23. apríl – Okv 9.1–18
Spekin hefur reist sér hús og höggvið til sjö stólpa sína. Hún hefur slátrað sláturfé sínu, blandað vín sitt og búið borð sitt. Hún hefur sent út þernur sínar, hún [...]
Biblíulestur 22. apríl – Lúk 5.33–6.5
En farísearnir og fræðimennirnir sögðu við Jesú: „Lærisveinar Jóhannesar fasta oft og fara með bænir og eins lærisveinar okkar en þínir eta og drekka.“ Jesús sagði við þá: „Hvort getið [...]
Biblíulestur 21. apríl – Lúk 17.11–19
Svo bar við á ferð Jesú til Jerúsalem að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. Og er hann kom inn í þorp nokkurt mættu honum tíu líkþráir menn. [...]